CCP er mest spennandi vinnustaður á Íslandi

Samkvæmt nýrri könnun MMR er CCP mest spenn­andi vinnu­staður lands­ins. Könnunin var unnin fyrir Starfs­manna­fé­lagið, sem sendir mán­að­ar­lega út sér­stakt minn­is­blað um starfs­manna­mál, vinnu­staði og fréttir af íslenskum vinnu­stöðum. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að minn­is­blöðum Starfs­manna­fé­lags­ins hér.

MMR sendi ríf­lega þrettán hund­ruð ein­stak­lingum spurn­ing­una: "Hvaða fyr­ir­tæki eða stofnun á Íslandi er að þínu mati mest spenn­andi vinnu­stað­ur­inn?" Engir svar­mögu­leikar voru í boði fyr­ir­fram, og því var fólki frjálst að skrifa nafn hvaða fyr­ir­tækis sem er. Spurn­ingin var send á fólk á öllu land­inu eldra en átján ára í síð­asta mán­uði.

Samkvæmt nið­ur­stöð­unum er CCP mest spenn­andi vinnu­staður lands­ins, en 15,4 pró­sent aðspurðra voru á þeirri skoðun. Össur og Íslensk erfða­grein­ing deila öðru sæt­inu með 5,6 pró­sent, en þar á eftir koma fyr­ir­tækin Icelandair (4,7%), Marel (4,6%), Land­spít­al­inn (4,3%), Plain Vanilla (4%) og Advania (2,9%). Rúmlega helm­ingur aðspurðra nefndi önnur fyr­ir­tæki.

Ef aðeins er litið til yngsta ald­urs­hóps­ins, 18 til 29 ára, trónir CCP á toppnum, Plain Vanilla er í öðru sæti og Land­spít­al­inn í því þriðja. Áhugi yngra fólks á Land­spít­al­anum vekur óneit­an­lega athygli í ljósi heldur nei­kvæðrar umræðu um spít­al­ann und­an­farin miss­eri.

Í elsta ald­urs­hópnum, 63 ára og eldri, er Íslensk erfða­grein­ing mest spenn­andi vinnu­staður lands­ins, en þar á eftir koma fyr­ir­tækin Marel og Össur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár