Sakar dómara um lögbrot í starfi

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir í kæru á hendur Ingveldi Ein­ars­dóttur dóm­ara að með­ferð hennar varð­andi kröfur um hús­leitir hafi verið and­stæð lögum. „Verulega hafi á skort að vinnu­brögð umrædds hér­aðs­dóm­ara hafi verið í sam­ræmi við lög þegar heim­ild til hús­leitar og hald­lagn­ingar hafi verið veitt,“ segir orð­rétt í kæru Þor­steins, sem birt er í heild sinni í Kjarn­anum í dag. Kæran var lögð fram 23. júní síð­ast­lið­inn en á rætur sínar að rekja til úrskurða í tengslum við aðgerðir Seðla­bank­ans gegn Samherja fyrir rúm­lega tveimur árum. Málin eru enn til rann­sóknar.

Ekki hægt að sannreyna


Þor­steinn Már, sem skrifar undir kæruna fyrir hönd Polaris Seafood ehf., segir að ekki hafi verið mögu­legt að sann­reyna gögn og fylgi­skjöl sem voru meg­in­rök­stuðn­ingur fyrir hús­leitum í starfs­stöðvum Samherja í mars­mán­uði 2012. „Rétt er að geta þess að hvorki kær­andi né aðrir sem beiðn­irnar beindust að hafa getað sann­reynt að gögn og fylgi­skjöl hafi yfir höfuð verið lögð fram fyrir hinn nýja dóm­ara, þrátt fyrir að í úrskurðum hans sé vísað til þess að rann­sókn­ar­gögn máls­ins liggi frammi og byggt sé á þeim. Ástæða þess er sú að umrædd gögn eru ekki í vörslum dóm­stóls­ins þrátt fyrir skýra og ófrá­víkj­an­lega laga­skyldu þar að lút­andi,“ segir í kærunni.

Þor­steinn Már segir „þving­un­ar­að­gerðir“ þær sem farið var út í að morgni dags 27. mars 2012 hafa byggt á heim­ildum dóm­ara þar um, sem hafi verið fengnar fram með meintum brotum á lögum. Er þar sér­stak­lega til­tekin 131. grein almennra hegn­ing­ar­laga, þar sem vikið er að störfum dóm­ara og opin­berra starfs­manna. Í henni segir: „Ef dóm­ari eða annar opin­ber starfs­maður, sem á að halda uppi refsi­valdi rík­is­ins, beitir ólög­legri aðferð til þess að koma manni til játn­ingar eða sagna, fram­kvæmir ólög­lega hand­töku, fang­elsun eða leit eða leggur að ólögum hald á skjöl eða aðra muni, þá varðar það sektum eða fang­elsi allt að 3 árum.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_26/8[/embed]

Vill ekki tjá sig


Þor­steinn Már telur að dóm­ar­inn hafi brotið gegn fyrr­nefndu laga­á­kvæði með því að van­rækja könnun laga­skil­yrða, boða full­trúa kær­anda ekki til þing­halds og þing­merkja ekki eða varð­veita gögn.
Kæran er nú komin inn á borð Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er þar til með­ferðar. Í sam­tali við Kjarnann sagð­ist Ing­veldur Ein­ars­dóttir ekki vilja tjá sig um kæruna á hendur henni.

Sjá má kæruna í heild sinni, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár