Ólöglegar hleranir sérstaks saksóknara undir smásjánni

Mikil umræða hefur átt sér stað um hler­anir hér á landi frá því að dómur féll í svoköll­uðu Imon-máli 3. júní síð­ast­lið­inn, en í því voru Elín Sig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, og Sigurjón Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri, sýknuð. Steinþór Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður verð­bréfa­miðl­unar bank­ans, var dæmdur í níu mán­aða fang­elsi, þar af sex mán­uði skil­orðs­bundið. Líklegt er að mál­inu verði áfrýjað til Hæsta­réttar en end­an­leg ákvörðun um það liggur ekki fyrir að hálfu sér­staks sak­sókn­ara.
Það sem helst hefur orðið til­efni til umræðu, ekki síst meðal lög­manna, eru for­sendur dóms­ins þar sem vikið er að hler­unum emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á sím­tölum ákærðu.

Orðrétt segir í dómnum: „Með vísan til 1. mgr. 36. gr. laga um með­ferð saka­mála bar rann­sak­anda að láta af sím­hlustun og stöðva upp­töku þegar ljóst var að um var að ræða sam­tal milli ákærðu og verj­enda þeirra. Samkvæmt loka­máls­lið 1. mgr. 85. gr. sömu laga bar jafn­framt að farga upp­tökum sím­tal­anna þegar í stað. Hvorugt var gert og fólu fram­an­greindar rann­sókn­ar­að­gerðir, eins og að þeim var staðið, í sér brot gegn til­vitn­uðum ákvæðum laga um með­ferð saka­mála.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/12[/embed]

Fleiri tilvik


Lögmenn margra þeirra sem hafa verið til rann­sóknar vegna mála sem tengj­ast efna­hags­hrun­inu hafa áður kvartað yfir því hvernig staðið hefur verið að hler­unum. Hörður Felix Harð­ar­son hrl., lög­maður Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, hefur verið í hópi þeirra sem hafa gagn­rýnt hvernig að þessu hefur verið staðið. Hann fékk sjálfur að hlusta á hleruð sím­töl sér­staks sak­sókn­ara sem voru tekin upp og geymd og voru þar á meðal sím­töl Harðar við Hreiðar Má. Þetta var það sama og var uppi á ten­ingnum í Imon-mál­inu og dóm­ari dæmdi ólölegar rann­sókn­ar­að­ferðir. Ljóst er því að sam­bæri­leg atvik þeim sem dæmd hafa verið ólög­mæt í hér­aði hafa komið upp áður.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurnum um þessi mál til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í mars síð­ast­liðnum eftir að upp­lýs­ingar bár­ust til rit­stjórnar um að sam­töl blaða­manna við suma þeirra sem hefðu verið til rann­sóknar hefðu verið hleruð og þau geymd. Samkvæmt svörum frá emb­ætt­inu var tekið fram að svo væri ekki, það er að sam­töl blaða­manna við fólk væru ekki hleruð og geymd. Lögð væri áhersla á það að afla aðeins upp­lýs­inga um það sem máli skipti, öðru væri eytt. En í ljósi þess hvernig hler­unin færi fram væri óhjá­kvæmi­legt að sím­töl sem vörð­uðu annað en málið sem til rann­sóknar væri gætu verið hleruð af starfs­mönnum emb­ætt­is­ins. Þeim bæri hins vegar að eyða öllu sem ekki tengd­ist mál­inu, og þá væri óheim­ilt að hlera sím­töl milli lög­manna og þeirra sem til rann­sóknar væru. Í ein­hverjum til­vikum kynni að hafa orðið mis­brestur á þessu, en þá hefði verið brugð­ist við því og öllu efni eytt sem þyrfti að eyða.

Líka í rauntíma


Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, hefur auk þess svarað því til að ekki sé hlerað í raun­tíma heldur séu tekin upp öll sam­töl, á grund­velli dóms­úr­skurðar þar sem heim­ildar­tíma­bil til hler­unar er til­tekið, og síðan fari starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara í gegnum þau eftir á og meti hvað eigi erindi við málið og hvað ekki. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er þessi lýs­ing ekki alls kostar rétt. Í mörgum til­vikum hafa starfs­menn emb­ætt­is­ins hlerað sím­töl í raun­tíma og hafa getað fylgst með því í gegnum tölvu­kerfi hvenær sá sem heim­ilt er að hlera hefur átt sam­töl í síma. Það er ekk­ert annað að gera en að setja heyrn­ar­tólin á höf­uðið og hlusta á það sem fram fer.

Ríkissaksóknari skoðar málið


Rík­is­sak­sókn­ari hefur haft starfs­að­ferðir emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara til skoð­unar og rann­sóknar í nokkuð langan tíma, ekki síst vegna síend­ur­tek­inna kvart­ana lög­manna yfir starfs­að­ferðum þegar kemur að hler­unum. Fyrr­nefndur Hörður Felix hefur átt í form­legum sam­skiptum við rík­is­sak­sókn­ara vegna þess­ara mála fyrir hönd Hreiðars Más og kraf­ist þess að ólög­legum hler­unum verði hætt hið snarasta, og hefur einnig fært fyrir því rök fyrir dómi að þessar ólög­legu aðgerðir sak­sókn­ara eigi að vera næg ástæða til þess að vísa málum á hendur Hreiðari Má frá dómi. Grafal­var­legt sé að beita ólö­legum rann­sókn­ar­að­ferðum í málum og það eigi að nægja til þess að láta mál niður falla.
Eins og áður segir hefur sér­stakur sak­sókn­ari alfarið hafnað þessu, telur hler­an­irnar ekki vera neina ástæðu til þess að vísa málum frá eða fella niður mál.

Þetta er brot úr umfjöllun Kjarnans um hler­anir sér­staks sak­sókn­ara. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár