Portishead vinnur að nýrri plötu og spila á Íslandi

Portis­head var leið­andi afl í tón­list­ar­stefnu sem oft er nefnd trip hop, var ríkj­andi í Bret­landi snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar.ljóm­sveitin Portis­head á sér marga aðdá­endur hér á landi og hefur hún verið að með hléum í rúm tutt­ugu ár. Sveitina stofn­uðu þau Geoff Barrow og Beth Gibbons í Bristol árið 1991 og nefndu hana eftir smábæ suður af borg­inni. Upp­töku­stjóri fyrstu breið­skífu sveit­ar­innar, Dummy, sem kom út árið 1994, var gít­ar­leik­ar­inn Adrian Utley og gekk hann til liðs við sveit­ina í upp­töku­ferli hennar.

Kjarninn setti sig nýverið í sam­band við Adrian Utley, sem var staddur í hljóð­veri sínu í mið­borg Bristol, og spurði hann meðal ann­ars um vænt­an­lega tón­leika á tón­listar­hátíð­inni All Tomorrow‘s Parties sem fram fer á Ásbrú dag­ana 10.–12. júlí næst­kom­andi. Þar kemur Portis­head fram ásamt tón­listar­mönnum á borð við Mogwai, Shellac, Swans, Liars, Sóleyju, Kurt Vile, Devendra Banhart, Slowdive, HAM og Low.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/54[/embed]

Er þetta í fyrsta skiptið sem þú heim­sækir Ísland?

Já, ég hef aldrei áður komið til Íslands en mér hefur lengi þótt landið mjög heill­andi og við hlökkum mjög mikið til að koma þangað. Ég hef séð tölu­vert af íslenskum kvik­myndum sem hafa gefið mér ein­hverja mynd af því hvernig landið er. Mynd­irnar sem ég hef séð af Íslandi minna mig tölu­vert á vestur­hluta Skotlands, nema hvað Ísland minnir mig aðeins meira á lands­lagið á tungl­inu. Ég veit hins vegar ekki hvernig það er að spila á Íslandi en þar sem hátíðin er haldin af All Tomorrow‘s Parties getur þetta ekki verið neitt minna en frá­bært.

Verðið þið með stóra hljóm­sveit á tón­leik­unum á Ásbrú?

Við verðum með sömu hljóm­sveit og við höfum alltaf spilað með fyrir utan einn nýjan hljóm­borðs­leik­ara.

Hvernig er tón­leika­prógram­mið byggt upp hjá ykkur?

Við ætlum að spila lög af öllum plöt­unum okkar. Sum lög getum við þó ekki spilað á tón­leikum, þar sem hljóð­vinnsla þeirra er of flókin fyrir lif­andi flutn­ing. Við spilum ekk­ert nýtt efni, því miður, af því við erum ekki með neitt til­búið.

Þið eruð að spila á nokkrum tón­list­ar­há­tíðum í sumar. Eruð þið vand­lát þegar kemur að því að velja hátíð­irnar sem þið spilið á?

Já, við erum vand­lát á allt sem við gerum. Við gerum nán­ast ekk­ert án þess að vera sátt við það.

Vill hanga með Sigur Rós


Þið hafið verið tölu­vert mikið við­loð­andi All Tomorrow‘s Parties í gegnum tíð­ina. Hver er mun­ur­inn á hátíð­inni og öðrum hátíðum að þínu mati?

Þetta er svo frá­bær hátíð. Barry Hogan og Deborah Kee Higgins eru virki­lega gott fólk og and­rúms­loftið í kringum þau og hátíð­ina er svo gott og áhuga­vert. Tón­listin er alltaf góð og hátíðin er ekki rekin með gróða að leið­ar­ljósi. Við höfum þrisvar verið gest­gjafar og við völdum öll atriðin á hátíð­inni. Hátíðin á Íslandi er örlítið ólík þeim sem við höfum spilað á áður þar sem við erum bara að spila en ekki að velja böndin. Við vitum þó að and­rúms­loftið verður mjög ein­stakt og við hlökkum mjög mikið til þess að koma að spila.

Hvernig líst þér á hin tón­list­ar­at­riðin á hátíð­inni á Íslandi?

Ég þekki ekki öll böndin sem eru að spila og ég verð að segja að ég er ansi svekktur yfir því að missa af Neil Young & Crazy Horse, þar sem við verðum ekki komin þegar þeir spila. Ég er mjög spenntur fyrir því að sjá Mogwai, Shellac, Liars og Swans og svo hef ég aldrei séð The Haxan Cloak spila á tón­leikum. Mér finnst hann vera frá­bær og hlakka mjög mikið til að sjá tón­leik­ana hans. Ég ætla að reyna að sjá allt sem ég get á meðan við verðum á land­inu og von­andi náum við að hitta með­limi Sigur Rósar og hanga aðeins með þeim.

Bristol hefur lengi verið suðu­pottur fyrir spenn­andi og áhuga­verða tón­list. Hvernig upp­lifir þú tón­list­ar­lífið þar?

Mér hefur alltaf fund­ist tón­listin héðan vera mjög fjöl­breytt og frá­bær en borg­ar­yf­ir­völd hafa aldrei sýnt sen­unni hérna neinn sér­stakan áhuga og hefur það oft vakið upp gremju í manni. Við höfum aldrei átt almenni­legt tón­list­ar­hús og tón­leika­staðir eru alltaf að loka. Borg­ar­yf­ir­völd reyndu lengi að góma mynd­list­ar­mann­inn Banksy sem er héðan og mála yfir verkin hans en þau eru aðeins farin að slaka á núna þar sem hann þénar mikið með list sinni. Það er frekar fúlt hvað það er lítið gert til þess að styðja við bakið á lista­líf­inu hér í borg­inni en engu að síður er það alltaf mjög frjótt og það er alltaf eitt­hvað spenn­andi í gangi. Ég flutti hingað vegna tón­list­ar­innar og sama má segja um Geoff, sem er ekki heldur frá Bristol. Burtséð frá því hvort senan fær stuðn­ing eða ekki virð­ist hún lifa mjög heil­brigðu og góðu lífi.

Þetta er brot úr ítar­legu við­tali við Adrian Utley sem birt­ist í síð­asta Kjarna. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár