Að birta en gleyma svo

Réttur manna til að birta og geyma upp­lýs­ingar og sjón­ar­mið per­sónu­verndar takast á í tveimur nýjum dómum Evr­ópu­dóm­stóls­ins. Þessir dómar geta haft ófyr­ir­séðar afleið­ingar á alla útgáfu­starf­semi og jafn­vel bóka­söfn.

Leit­ar­vélar á net­inu eru bóka­söfn nútíma­manns­ins. Rúmur helm­ingur Íslend­inga notar Google dag­lega og níu af hverjum tíu viku­lega sam­kvæmt könnun MMR. Bókasöfn, útgáfu­fyr­ir­tæki og fjar­skipta­fyr­ir­tæki hafa aðlag­ast þess­ari staf­rænu þróun þannig að efni er nú aðgengi­legt les­endum hvar sem er, hvenær sem er.

Vefurinn tima­rit.is er ágætt dæmi um vel heppnað verk­efni af þessu tagi. Þar geta les­endur nú nálg­ast hátt í níu hund­ruð titla og fleiri en fjöru­tíu þús­und greinar á staf­rænu formi. Vefurinn býður einnig upp á leit­arsíu sem auð­veldar not­endum að finna efni frá upp­hafi útgáfu­starf­semi á Íslandi, svo sem dag­blöð fram til dags­ins í dag.

Timarit.is hefur án efa bætt aðgengi almenn­ings að fjöl­miðlum for­tíð­ar­innar. Ekki aðeins vegna þess að fólk getur nú nálg­ast þetta efni á net­inu án end­ur­gjalds, heldur sömu­leiðis vegna þeirra fjöl­breyttu leit­ar­mögu­leika sem síðan býður upp á.

Rétturinn til að gleymast


En ekki eru allir á eitt sáttir um hvort að efni sem teng­ist for­tíð þeirra, ást­vina og fjöl­skyldu­með­lima, eigi yfir höfuð erindi við les­endur og almenn­ing. Nú er talað um „rétt­inn til að gleym­ast“ eftir að Evr­ópu­dóm­stóll­inn stað­festi þann 13. maí að Google bæri að fjar­lægja hlekk, þar sem hægt var að nálg­ast upp­lýs­ingar um Spán­verj­ann Mario Costeja Gonzáles frá árinu 1998.

Gonzáles var ósáttur við tvær til­kynn­ingar um nauð­ung­ar­upp­boð á fast­eign í hans eigu sem birt­ust í spænska blað­inu La Vangu­ar­dia og teknar voru upp í leit­ar­nið­ur­stöðum Google. Spænska gagna­verndin (AFPD) sótti málið fyrir hans hönd og taldi að þótt La Vangu­ar­dia hefði lög­gilda ástæðu fyrir því að birta upp­lýs­ing­arnar, bryti mið­læg söfnun og úrvinnsla slíkra upp­lýs­inga gegn frið­helgi einka­lífs, sér­stak­lega þegar leitað er að nöfnun ein­stakra manna.

Á þetta sjón­ar­mið féllst dóm­stóll­inn, sem taldi leit­ar­lista sem þennan brjóta gegn Evr­óputil­skipun um vernd per­sónu­upp­lýs­inga og sagði að „ ... þessar upp­lýs­ingar geta átt við ýmsa þætti einka­lífs hans og án leit­ar­vél­ar­innar hefði verið erfitt að tengj­ast þeim. Net­not­endur geta þar af leið­andi fengið mjög nákvæma mynd af því fólki sem leitað er að.“

Í ljósi þessa getur dóm­ur­inn haft marg­vís­leg áhrif á fjöl­miðlun og eðli upp­lýs­inga. Lesendur vef­síða geta sam­kvæmt honum óskað þess að hlekkir um þá verði fjar­lægðir eða faldir í leit­ar­vélum jafn­vel þótt þær hafi upp­haf­lega verið birtar með lög­legum hætti. Í þessu sam­bandi talar Evr­ópu­dóm­stóll­inn um að gæta jafn­vægis, þar sem meta verði aðstæður hverju sinni og mik­il­vægi upp­lýs­ing­anna í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni. Dómurinn setur ekki skorður við söfnun og varð­veislu slíkra upp­lýs­inga, en segir að huga verði að per­sónu­vernd við úrvinnslu og fram­setn­ingu þeirra.

Þetta er stutt útgáfa af grein um þetta efni sem birt­ist í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Lesa má grein­ina í heild í nýj­ustu útgáfu Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár