Blikur á lofti á hlutabréfamarkaði í höftum

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn er far­inn að mót­ast veru­lega af fjár­magns­höftum og þeirri stað­reynd að kostir á fjár­mála­mark­aði eru fáir. Velta með hluta­bréf dróst veru­lega saman milli mán­aða sé mið tekið af tölum sem Nasdaq OMX tók saman í mán­að­ar­legu yfir­liti sínu fyrir kaup­hallir á Norð­ur­lönd­unum og Eystra­salts­ríkj­unum. Í maí­mán­uði nam velta með hluta­bréf í kaup­höll­inni hér á landi 22,3 millj­örðum, sem er 34 pró­sentum minni velta en var í apr­íl­mán­uði og 42 pró­sentum minni velta en í sama mán­uði í fyrra.

Minni velta en vaxandi markaðsvirði


Þrátt fyrir að velta hafi verið tölu­vert minni í við­skiptum með hluta­bréf hefur mark­aðsvirði félaga í kaup­höll­inni haldið áfram að hækka und­an­farið ár. Mark­aðsvirði þeirra 18 félaga sem eru með skráð hluta­bréf í kaup­höll­inni, bæði á Aðal­mark­aði og á First North, nemur nú 593 millj­örðum króna, eða sem nemur tæp­lega þriðj­ungi af árlegri lands­fram­leiðslu Íslands. Á sama tíma í fyrra nam mark­aðsvirði skráðra félaga 473 millj­örðum og hefur mark­aðsvirði skráðra félaga því auk­ist um 120 millj­arða á einu ári.

Munar þar ekki síst um skrán­ingu Granda, en við­skipti með hluta­bréf félags­ins hófust 25. apríl síð­ast­lið­inn. Sú skrán­ing hefur reyndar dregið dilk á eftir sér og hefur Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, harð­lega gagn­rýnt hvernig að skrán­ing­unni var staðið, þar sem fölsk kauptil­boð voru sett inn þegar félagið var skráð. Við þau var ekki staðið þegar á hólm­inn var komið og nam umfang þess­ara fölsku við­skipta 5,7 pró­sentum af heild­ar­hlutafé. Margir hlut­hafar urðu reiðir yfir þessu og hafa kvart­anir vegna þessa borist til Kaup­hall­ar­innar og FME. Páll sagði í sam­tali við Stöð 2, sem fjall­aði ítar­lega um málið, að full ástæða væri til þess að kanna hvort lög hefðu verið brotin með þessu.

Nýr hlutabréfamarkaður að mótast


Eftir hið ævin­týra­lega hrun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins haustið 2008, þegar hann féll nær allur saman sam­hliða falli Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans, hefur orðið til nýr hluta­bréfa­mark­aður þar sem gjör­ó­líkar áherslur heldur en fyrir hrun ein­kenna rekstur. Þá var aðgengi að fjár­magni gott og mik­ill þrýst­ingur frá fjár­festum á vöxt félaga og stækkun efna­hags­reikn­ings, ekki síst með skuld­settum yfir­tökum. Nú er öldin önnur. Trygg­inga­fé­lögin TM, VÍS og Sjóvá hafa til dæmis litla sem enga vaxt­ar­mögu­leika hér á landi nema með því að stækka mark­aðs­hlut­deild á kostnað hlut­deildar sam­keppn­is­að­ila. Reyndin hefur verið sú að veiga­litlar breyt­ingar hafa orðið á hlut­deild félag­anna. Rekst­ur­inn er í traustum skorðum og er áhersla fremur á arð­greiðslur til hlut­hafa. Það sama má segja um N1 og Haga. Vaxt­ar­mögu­leikar eru litlir sem engir en stöð­ugur rekstur sem skilar hlut­höfum arði er fyrir hendi.

Gríðarleg ávöxtun í skjóli fjármagnshafta


Frá hruni hefur mark­aðsvirði skráðra félaga auk­ist mikið, marg­fald­ast raunar í sumum til­vikum. Þannig var skrán­ingar­gengi fyrsta félags­ins á markað eftir hrunið, Haga, 13,5 við skrán­ingu á markað en er nú 45,5. Það sama má segja um Icelandair, sem var end­ur­skráð á markað á geng­inu 2,5 eftir hrunið en gengi félags­ins í kaup­höll­inni nú er 17,7. Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði eru á einu máli um að fjár­magns­höftin hafi haft mikil áhrif á mark­að­inn til þess að byrja með, þar sem mik­ill þrýst­ingur hafi verið á skrán­ingar félaga með góðan rekstr­ar­grund­völl eftir hrunið, ekki síst til að mæta fjár­fest­ing­ar­þörf líf­eyr­is­sjóð­anna á mark­aðnum. Þetta hafi leitt til mik­illar hækk­unar bréfa þegar mark­að­ur­inn var að spyrna sér frá botn­inum. Í hverjum mán­uði þurfa líf­eyr­is­sjóð­irnir að fjár­festa fyrir 12 til 13 millj­arða króna til þess ávaxta fé sjóð­fé­laga og því skiptir máli að fjár­fest­ing­ar­kostir séu til staðar. Þrýst­ing­ur­inn á fjár­fest­ing­ar­mögu­leika í kaup­höll­inni var ekki síst úr þess­ari átt, enda líf­eyr­is­sjóð­irnir lang­sam­lega umsvifa­mestu fjár­festar á mark­aði, heilt á litið.

Blikur á lofti


Eftir miklar hækk­anir á gengi hluta­bréfa hefur hægt á þessum miklu hækk­unum og mark­að­ur­inn sýnt eðli­legri verð­myndun, þó að sveiflur í veltu hafi verið mun meiri en á öðrum mörk­uðum á Norð­ur­lönd­unum eða víðar. Ástæðan er ekki síst sú að mark­að­ur­inn á Íslandi er dverg­vax­inn í næstum öllum sam­an­burði og býr ekki við alþjóð­legar fjár­magns­hreyf­ingar milli landa, en félög sem skrá sig á markað erlendis gera það ekki síst til þess að ná til alþjóð­legra fjár­festa og tengj­ast nýjum mörk­uðum.

Eftir því sem ströng fjár­magns­höft verða lengur, þeim mun erf­ið­ara verður fyrir fjár­festa að átta sig á verð­lagn­ingu á mark­aðnum, hvort sem um hluta- eða skulda­bréf er að ræða. Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði sögðu höftin vera farin að hafa veru­leg áhrif á mark­aði, fé leit­aði inn á fast­eigna­markað í meiri mæli en í eðli­legu árferði og veru­leg hætta væri á verð­bólu. Þá er farið að bera á því að fjár­festar séu að taka skort­stöðu gegn félögum á mark­aði þar sem veðjað er á lækkun á gengi bréfa, t.d. sam­hliða rýmkun fjár­magns­hafta.

Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir enn hvenær fjár­magns­höft verða rýmkuð eða afnumin eru fjár­festar, í litlum mæli þó, farnir að horfa til þess að eigna­verð gæti lækkað þegar opnað verður fyrir nýjar leiðir til fjár­fest­inga úr land­inu. Grein­ingar frá sér­fræð­ingum grein­ing­ar­deilda bank­anna hafa þó ekki gefið til kynna að félögin séu yfir­verð­lögð, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum þar sem sú ráð­gjöf er veitt að selja bréfin. Rekstr­ar­kenni­tölur þykja ekki benda til yfir­verð­lagn­ingar að mati sér­fræð­ing­anna. En það er með rekstr­ar­kenni­töl­urnar eins og verð­lagn­ingu á vörum almennt innan strangra fjár­magns­hafta; það er erfitt að greina hvað er rétt og rangt.

Úttektin birt­ist fyrst í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár