Ættir þú að vera á sveppum?

Margar sveppa­teg­undir hafa alla tíð verið not­aðar til matar, en ekki vita allir að sumir sveppir hafa líka verið not­aðir til lækn­inga öldum saman. Mikil hefð er fyrir notkun sveppa til lækn­inga í Asíu en und­an­farna ára­tugi hafa þeir einnig náð vin­sældum á Vest­ur­löndum og eru núna vin­sælt rann­sókn­ar­efni vís­inda­manna. Áður fyrr voru sveppir ein­göngu tíndir villtir og voru sumir þeirra sjald­gæfir og ákaf­lega verð­mætir. Í dag eru sveppir hins vegar rækt­aðir í tug­þús­unda tonna tali ár hvert bæði til mann­eldis og í fæðu­bót­ar­efni. Í þess­ari grein verður fjallað um þrjár teg­undir sveppa sem hafa verið hvað vin­sælastar und­an­farin ár: reishi, shiitake og maitake. Allir eiga þeir það sam­eig­in­legt að þykja styrkja ónæm­is­kerfið og hafa verið tölu­vert rann­sak­aðir í tengslum við krabba­meins­með­ferðir.

Reishi (Gan­oderma lucidum)
Í Kína á öldum áður þótti reishi-svepp­ur­inn auka lang­lífi, en hann var sjald­gæfur og því fengu ein­göngu keis­ar­inn og hirð hans að njóta hans. Í Japan er notkun reishi sam­hliða annarri krabba­meins­með­ferð við­ur­kennd af jap­anska heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, en reishi-svepp­ur­inn er tal­inn auka áhrif hefð­bund­innar lyfja­með­ferðar við krabba­meini og draga úr auka­verk­unum hennar. Reishi er einnig tal­inn hafa jafn­vægis­still­andi áhrif á ónæm­is­kerfið og hefur verið not­aður gegn sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum eins og liða­gigt, MS og lúpus og einnig lifr­ar­bólgu B og C, vefja­gigt, HIV/AIDS og herpes vírus.

  • styrkir og kemur jafn­vægi á ónæm­is­kerfið
  • langvar­andi bronkítis, astmi og hósti
  • styrkir hjarta- og æða­kerfi
  • hár blóð­þrýst­ingur, hátt kól­esteról
  • styrkir og verndar lifur
  • svefn­leysi, stress, kvíði
  • bakt­eríu-, sveppa- og vír­us­drep­andi
  • hár blóð­sykur
  • krabba­mein

Shiitake (Lent­inula edodes)
Shiitake-sveppir fást bæði ferskir og þurrk­aðir í mat­vöru­búðum hér­lendis. Extrakt kall­aður Lenantin sem unnið er úr shiitake-sveppum og gefið er í sprautu­formi er við­ur­kennt lyf í Japan og er notað við krabba­meini, HIV og lifr­ar­bólgu B og C. Extrakt kallað LEM er hins vegar algengt í töflu­formi í Asíu og Banda­ríkjum.

  • hátt kól­esteról
  • styrkir og verndar lifur
  • styrkir ónæm­is­kerfið
  • kvef og bronktítis
  • krabba­mein

Maitake (Grifola frondosa)
Maitake-svepp­ur­inn hefur þó nokkuð verið rann­sak­aður við krabba­meini en aðal­lega þó í til­raunaglösum eða á dýrum. Í flestum til­fellum er verið að rann­saka ein­angrað efni í sveppnum sem kall­ast maitake-D-fraction.

  • Styrkir og kemur jafn­vægi á ónæm­is­kerfið
  • Bakteríu-, sveppa- og vír­us­drep­andi
  • Hátt kól­esteról
  • Hár blóð­sykur
  • krabba­mein

Skammtar
Ýmsar teg­undir af hylkjum og dufti unnu úr ofan­greindum sveppum fást í heilsu­búðum hér­lendis. Reishi: 3-12 g af dufti á dag. 3x300 mg hylki (1:5) þrisvar á dag. Shiitake: 6-16 g af dufti á dag. 300 mg hylki þrisvar á dag. Maitake: 5-10 g af dufti á dag. 2x500 mg hylki tvisvar til þrisvar á dag.
Varúð
Þeir sem eru með ofnæmi gegn sveppum mega ekki taka ofan­greinda sveppi. Í stórum skömmtum geta þessir sveppir valdið melt­ing­ar­trufl­unum og nið­ur­gangi. Hætta skal notkun reishi a.m.k. einni viku fyrir skurð­að­gerð. Konum með miklar tíða­blæð­ingar er ekki ráð­lagt að taka stóra skammta af reishi.

Heim­ildir
Botanical Safety Handbook. 2013. AHPA (American Herbal Products Association). 2. útg. CRC Press, Florida, USA.

Hobbs Christopher. 1995. Medicinal Mushrooms. Botanica Press, Tennessee, USA.

Rogers Robert. 2011. The Fungal Pharmacy. North Atlantic Books, California, USA.

Til­lots­son Alan Keith. 2001. The One Earth Herbal Source­book. Kens­ington Books, New York, USA.
Winston David og Kuhn.M. 2008. Herbal Therapy and Supplem­ents. Lippincott Williams and Wilkins, PA, USA.

Greinin birt­ist fyrst í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár