Embætti Seðlabankastjóra auglýst laust til umsóknar

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, hefur aug­lýst emb­ætti banka­stjóra Seðla­banka Íslands laust til umsóknar. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu.
Seðla­banka­stjóri stýrir Seðla­banka Íslands og ber ábyrgð á rekstri hans og fer með ákvörð­un­ar­vald í öllum mál­efnum hans sem ekki eru falin öðrum sam­kvæmt lögum um Seðla­banka Íslands. Már Guð­munds­son er sem kunn­ugt er seðla­banka­stjóri.

„Fjármála- og efna­hags­ráð­herra skipar seðla­banka­stjóra Seðla­banka Íslands til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðla­banka Íslands, með síð­ari breyt­ingum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðla­banka­stjóra tvisvar sinnum. Seðla­banka­stjóri skal full­nægja almennum starfs­geng­is­skil­yrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra.

Aug­lýs­ingin er birt í Lög­birt­inga­blað­inu og á starfa­torgi, en jafn­framt verður hún birt í dag­blöðum. Umsókn­ar­frestur er til föstu­dags­ins 27. júní 2014.

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra til­kynnti í febr­úar sl. að end­ur­skoðun laga um Seðla­banka Íslands stæði fyrir dyrum og var stofn­aður starfs­hópur sem vinnur að því að leggja mat á æski­legar breyt­ingar. Hópurinn hefur það að mark­miði að treysta trú­verð­ug­leika og sjálf­stæði bank­ans og traust á íslenskum efna­hags­málum, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu frá efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár