Niðurstöður kosningaspár sýna sigur Samfylkingar

Sam­fylk­ingin verður ótví­ræður sig­ur­veg­ari borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í dag. Þetta er nið­ur­staða kosn­inga­spár Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er nú orð­inn stærri í Reykja­vík en Vinstri grænir, í fyrsta sinn í kosn­inga­bar­átt­unni. Fylgi Bjartar fram­tíðar er í fyrsta sinn orðið minna en 20 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú næst stærsta fram­boðið í Reykja­vík. Sex fram­boð fá full­trúa kjörna í borg­ar­stjórn. Sam­fylk­ingin er lang stærst með sex full­trúa, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Björt fram­tíð fá þrjá og odd­vitar Pírata, Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina og Vinstri grænna ná kjöri.

Þróun á fylgi framboðanna


Kosn­inga­spá keyrð frá 26. febr­úar til 30. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Framboð Dögunnar og Alþýðu­fylk­ing­ar­innar munu ekki fá braut­ar­gengi sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Nýjasta kosn­inga­spáin sem gerð var í gær­kvöldi er lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna miðað við síð­ustu fjórar kann­anir sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boð­anna und­an­farna daga. Engin könnun verður birt í dag, kjör­dag, lögum sam­kvæmt. Kosn­inga­spáin birt­ist því hér í síð­asta sinn fyrir kosn­ing­arnar í ár.

Fjöldi fulltrúa í borgarstjórn


[visualizer id="4611"]

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­valla­vina, er nú tólfti full­trú­inn sem kjör­inn verður í borg­ar­stjórn. Sjötti full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar er fimmt­ándi og síð­asti full­trú­inn sem kjör­inn verður. Næstur inn er fjórði full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þar á eftir er fjórði full­trúi Bjartar fram­tíðar.

Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti Besta flokks­ins (nú Bjartar fram­tíðar) og Sam­fylk­ing­ar­innar heldur, miðað við þessa nið­ur­stöðu, með níu full­trúa. Telst það lík­legt að meiri­hluta­sam­starfið haldi áfram á næsta kjör­tíma­bili fari kosn­ing­arnar svona.

Fylgi gæti stjórnast af kjörsókn


Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, lét hafa eftir sér í fréttum RÚV í gær­kvöldi að kjör­sókn gæti haft áhrif á dreif­ingu fylg­is­ins í Reykja­vík. Kjörsókn í borg­ar­stjórn­ar­kos­ing­unum 2010 var aðeins 73,4 pró­sent, sú minnsta í borg­inni frá upp­hafi. Kjörsókn á lands­vísu árið 2010 var jafn­framt sú minnsta allra tíma í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á Íslandi.

Rétt fyrir lokun utan­kjör­fundar í Laug­ar­dals­höll í gær­kvöldi höfðu 9.776 atkvæði verið greidd utan­kjör­fundar hjá sýslu­mann­inum í Reykja­vík. Þar af voru nokkur hund­ruð atkvæði aðsend, frá sýslu­manns­emb­ættum á lands­byggð­inni eða erlendis frá. Á kjör­skrá í Reykja­vík eru 90.487 svo um níu pró­sent kosn­inga­bærra Reyk­vík­inga hafa þegar kosið.

Í Reykja­vík opna kjör­staðir klukkan níu í dag og lokar klukkan 22. Á vef Reykja­vík­ur­borgar má finna upp­lýs­ingar um hvar íbúar í Reykja­vík skulu kjósa. Þar má jafn­framt finna kort þar sem stað­setn­ingar kjör­staða eru merktar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár