Messufall Gunnars í Krossinum

Það fór vænt­an­lega ekki fram hjá mörgum þegar sjö konur stigu fram árið 2010 og sök­uðu Gunnar Þor­steins­son, betur þekktan sem Gunnar í Kross­inum, um kyn­ferð­is­lega áreitni. Málið vakti mikla athygli í fjöl­miðlum og fjall­aði vef­mið­ill­inn Pressan mikið um málið. Til að gera langa sögu stutta var Gunnar mjög ósáttur við umfjöllun Pressunnar og hefur nú höfðað meið­yrða­mál á hendur Stein­grími Sævarri Ólafs­syni, fyrrum rit­stjóra Pressunnar, ásamt Ástu Knúts­dóttur og Sesselju Engilráð Barðdal, tals­konum kvenn­ana sjö.

Einar Hugi Bjarna­son, lög­maður Gunnars, sagði fyrir dómi að umfjöllun fjöl­miðla um ásak­anir kvenn­anna á hendur Gunnari hafi lagt líf hans í rúst. „Þetta gerð­ist á einni nóttu og það hrundi allt hjá honum,” sagði Einar Hugi jafn­framt og bætti við: „Líf hans var lagt í rúst. Ekki bara nóg með það, heldur missti stefn­andi stóran hluta vina og kunn­ingja­hóps­ins. Málið hefur reynst honum eins erfitt og hugs­ast getur.” Þá hafi Gunnar „hrökkl­ast úr ævi­starfi sínu, sem hann hafði gegnt í ald­ar­fjórð­ung.“ (DV.is)

Hér verður ekki lagt mat á sann­leiks­gildi þess­ara frá­sagna en það er hins vegar ákveðin kald­hæðni fólgin í því að umfjöllun fjöl­miðla um meið­yrða­málið og vitn­is­burð fólks sem hefur verið leitt fyrir dóm­inn er ein­hvern veg­inn miklu nákvæm­ari og graf­ísk­ari en umfjöllun Press­unar um meint kyn­ferð­is­brot var nokkurn tíma. Und­an­farna daga höfum við séð fyr­ir­sagnir í fjöl­miðlum á borð við „Hann talar um að geir­vört­urnar séu brúnar og vildi fá smakk“ (Visir.is) og „Hann er sið­blindur rað­ped­ófíll sem er búinn að mis­nota fullt af fólki í skjóli trú­ar­innar” (DV.is). Sann­ar­lega ekki fyr­ir­sagnir sem lík­legar eru til að bæta mann­orð og ímynd Gunnars og það hafa senni­lega fáir þjóð­þekktir menn á und­an­förnum árum komið jafn illa út í umfjöllun fjöl­miðla og Gunnar í þessu máli. Og þá má spyrja, hefði hann betur setið heima og sleppt því að höfða þetta meið­yrða­mál? Hefði honum átt að vera ljóst að áhugi fjöl­miðla á mál­inu yrði mik­ill og umfjöllun um málið gæti hugs­an­lega verið mjög skað­leg fyrir hann?

Nú veit ég ekki hvort Gunnar hafi fengið ráð­gjöf frá almanna­tengli áður en hann höfð­aði þetta meið­yrða­mál en flestir hefðu senni­lega ráð­lagt honum að skoða málið vand­lega frá öllum hliðum áður en hann tæki ákvörðun. Áhættu­stjórnun er nefni­lega þekkt víðar en í fjár­mála­heim­inum og er mikið notuð af almanna­tenglum til þess að hjálpa þeim að meta aðstæður áður en farið er í aðgerðir. Áhættu­stjórn­un­un­ar­ferlið miðar að því að finna áhættur, greina þær og meta og ákveða aðgerðir til þess minnka áhættur, eyða þeim eða ein­fald­lega sætta sig við þær. Til þess að meta aðstæður hefði Gunnar getað spurt sig nokk­urra ein­faldra spurn­inga; Hvern hefur málið áhrif á? Hver hefur hags­muni af mál­inu? Hver er í aðstöðu til þess að hafa áhrif á fram­hald máls­ins? Hvernig byrj­aði málið? Hverjir eru ger­endur í mál­inu? Hefur málið áhrif á aðra en ger­endur og þolendur? Með öðrum orðum, lesa sal­inn.

Það verður að telj­ast lík­legt ef Gunnar hefði skoðað málið ofan í kjöl­inn og velt því fyrir sér frá öllum hliðum að hann hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að miklar líkur væru á að umfjöllun fjöl­miðla um málið yrði mikil, rétt­ar­höldin yrðu skrifuð upp af blaða­mönnum nán­ast orð fyrir orð, að fyrir dóm­inn yrðu leidd vitni og aðilar tengdir mál­inu sem myndu lýsa ítar­lega sinni upp­lifun af sam­skiptum við Gunnar og að nokkuð öruggt væri að þetta myndi sýna Gunnar í nei­kvæðu ljósi. Í fram­haldi af því þyrfti Gunnar svo að meta hvort það væri þess virði að sækja málið fyrir dóm­stólum, vit­andi það að umfjöllun fjöl­miðla yrði honum lík­lega mjög erfið. Almann­teng­ill­inn hefði ráð­lagt honum að gera ekki neitt, sem er oft besta taktíkin, en lög­mað­ur­inn hefði eðli­lega ráð­lagt honum að leita réttar síns. En það væri áhuga­vert að vita hvort Gunnar myndi höfða þetta meið­yrð­ar­mál núna ef hann vissi það sem hann veit í dag.

Greinin birt­ist í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár