Samfylkingin stingur af í Reykjavík

Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði, sýnir að fylgi Fram­sóknar og flug­valla­vina er orðið nægt til að odd­viti list­ans nái kjöri í kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn. Sam­fylk­ingin heldur áfram að styrkja stöðu sína í borg­inni og hefur aldrei reikn­ast með meira fylgi en nákvæm­lega í dag, tveimur dögum fyrir kosn­ingar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Björt fram­tíð halda áfram að tapa fylgi.

Tvær kann­anir á fylgi fram­boð­anna í Reykja­vík birt­ust í morgun og sýna báðar kann­an­irnar svip­aða þróun á fylgi flokk­anna. Morg­un­blaðið birti könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar og Frétta­blaðið könnun sína. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er kom­inn með nægj­an­legt fylgi til að ná manni inn og Sam­fylk­ingin heldur áfram að styrkja stöðu sína og fær sex menn kjörna sam­kvæmt báðum könn­unum. Fimmtán full­trúar verða kjörnir í borg­ar­stjórn á laug­ar­dag­inn.

Þróun á fylgi framboðanna


Nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar 26. febr­úar til 28. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Björt fram­tíð og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eru nú farin að daðra við 20 pró­sentin á meðan Sam­fylk­ingin er stungin af með 33,9 pró­sent. Kosn­inga­spáin sýnir þó að Björt fram­tíð hefur tapað meira en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og er aftur orðið þriðja stærsta fram­boðið.

Kjarninn greindi frá því í morgun að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri nú aðeins með þrjá full­trúa. Það breyt­ist ekki þó Björt fram­tíð hafi fallið aftur. Framboð Æ-list­ans fær nú einnig aðeins þrjá menn. Bæði fram­boðin höfðu nokkuð stöðugt fylgi fyrir fjórum full­trúum lengst af kosn­inga­bar­átt­unnar en missa nú menn tveimur dögum fyrir kosn­ingar. Meiri­hlut­inn í borg­inni heldur með níu full­trúum.

Kosn­inga­spáin sýnir enn fremur að fylgi Pírata og Vinstri grænna heldur áfram að minnka. Spáin gerir ráð fyrir að fram­boðin tvö séu nú orðin svipað stór og fram­boð B-list­ans, um það bil sjö pró­sent. Það dugar öllum þremur til að fá odd­vita sína kjörna í borg­ar­stjórn.

Skipting fulltrúa í borgarstjórn


[visualizer id="4611"]

Þó kann­an­irnar tvær sem birt­ust í dag sýni í meg­in­at­riðum sömu þróun er nokkur munur á fylg­is­þróun hvers fram­boðs. Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar mælir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar til að mynda vera 37,3 pró­sent, tæp­lega tveimur pró­sentu­stigum meira en í könnun Frétta­blaðs­ins. Að sama skapi mælist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 9,2 pró­sent í könnun Frétta­blaðs­ins en 5,5 pró­sent í könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar.

Meg­in­mun­ur­inn á þessum könn­unum er fram­kvæmd þeirra. Frétta­blaðið aflar svara í síma á tveggja daga tíma­bili (í þessu til­viki 27. og 28. maí) en Félags­vís­inda­stofnun styðst við svör úr bæði úthring­ingum og vef­hóp sem aflað var dag­ana 21. til 26. maí. Kosn­inga­spáin vegur nið­ur­stöð­urnar með nýj­ustu könn­unum sem fyrir liggja og því eru fylg­is­sveifl­urnar ekki eins dramat­ískar og sýnt er fram á í Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu.

Nýjasta kosn­inga­spáin byggir á síð­ustu sex könn­unum sem birtar hafa verið.

  • Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar sem gerð var dag­ana 12. til 15. maí.
  • Könnun Capacent/Gallup sem gerð var dag­ana 7. til 21. maí.
  • Könnun MMR sem gerð var dag­ana 20. til 23. maí.
  • Könnun MMR sem gerð var dag­ana 26. til 28. maí.
  • Könnun Frétta­blaðs­ins sem gerð var dag­ana 27. til 28. maí.
  • Könnun Félags­vís­inda­stof­unnar sem gerð var dag­ana 21. til 27. maí.

    Síðbúin sókn Framsóknar og flugvallarvina


    Það verður að telj­ast nokkuð merki­legt að B-list­inn undir for­ystu Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur sé fyrst nú að ná vopnum sínum eftir að hafa verið í vand­ræðum alla kosn­inga­bar­átt­una. Fylgi fram­boðs­ins hefur aldrei farið upp fyrir fimm pró­sent, síðan kosn­inga­spáin var fyrst reiknuð 26. febr­úar, fyrr en í gær þegar könnun MMR mældi Framsókn nógu stóra til að fá mann kjör­inn.

Odd­vita­vand­ræði flokks­ins fóru hæst í apríl eftir að Óskar Bergsson hætti við að taka fyrsta sætið á lista Fram­sóknar. Þá var Guðni Ágússts­son oft­ast nefndur sem odd­vita­efni flokks­ins í Reykja­vík en á end­anum varð úr að Svein­björg Birna var valin. Hún er jafn­framt for­maður Lands­sam­bands fram­sókn­ar­kvenna. Hópur fólks sem vill halda flug­vell­inum í Vatns­mýri var þá í lok apríl, tekin upp á vagn­inn og bjóða Framsókn og flug­vall­ar­vinir saman fram í borg­inni.

Ástæður þess að fram­boðið skuli fá byr í seglin nú geta verið marg­vís­legar en erfitt er að líta fram hjá ummælum Svein­bjargar Birnu 23. maí síð­ast­lið­inn um skoð­anir hennar á úthlutun lóðar undir mosku í Sogamýri. Vísir.is hafði þá eftir henni að: „[á] meðan við erum með þjóð­kirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur eða kirkjur fyrir grísku rét­trún­að­ar­kirkj­una.“ Kannanir gætu fyrst núna, sex dögum eftir að ummælin féllu, verið að mæla áhrif þess­arar stefnu Svein­bjargar.

Ummælin hafa dregið dilk á eftir sér. Hreiðar Eiríks­son, fimmti maður á B-lista, hefur dregið stuðn­ing sinn við fram­boðið til baka og for­ysta Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur áréttað að skoð­anir Svein­bjargar end­ur­spegli ekki skoð­anir og stefnu flokks­ins. Mót­fram­bjóð­endur Svein­bjargar hafa flestir staðið upp og sagt mik­il­vægt að trú­frelsi sé virt.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tjáði sig fyrst í hádeg­inu í dag um málið. Hann hefur hingað til beðist undan við­tali og sagst ekki þekkja máls­at­vik nógu vel til að geta tjáð sig um það. Sig­mundur segir á Facebook-síðu sinni að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi frá upp­hafi verið í far­ar­broddi í efl­ingu almanna­hags og mann­rétt­inda, vilji rök­ræða og leyfa umræðu og að eðli­leg nið­ur­staða sé þá sú að allir séu fæddir jafn­rétt­háir.


Kosn­inga­spáin verður upp­færð um leið og nið­ur­stöður nýrra kann­ana eru birtar allt fram að kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár