Framsókn nær kjöri á kostnað Sjálfstæðismanna

Könnun MMR, sem birt var í gær, hefur nokkuð afger­andi áhrif á kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði. Þó fylg­is­breyt­ing­arnar séu almennt ekki miklar (innan við eitt pró­sentu­stig), tapar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einum full­trúa til Fram­sóknar og flug­valla­vina. Samkvæmt spánni er Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir odd­viti B-list­ans síð­asti fram­bjóð­and­inn sem nær kjöri. Þetta er í fyrsta sinn sem list­inn mælist með nægj­an­legt fylgi til að fá mann kjör­inn. Þegar kosn­inga­spáin var gerð í gær­kvöldi voru aðeins þrír dagar til kosn­inga.

Þróun á fylgi framboðanna


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 28. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Sam­fylk­ingin er enn stærsta fram­boðið í borg­inni og hefur aðeins einu sinni áður mælst með meira fylgi síðan fyrsta kosn­inga­spáin var birt. Það var fyrir rúmri viku síðan eftir að könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar 20. maí sýndi miklar fylg­is­sveiflur meðal stóru fram­boð­anna. Sam­fylk­ingin heldur fimm borg­ar­full­trúum og Björt fram­tíð er enn næst stærsta fram­boðið, með fjóra kjörna full­trúa. Þess ber þó að geta að mun­ur­inn á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Bjartar fram­tíðar er langt innan vik­marka.

Skipting fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Fulltrúi Fram­sóknar og flug­valla­vina er valtur í fimmt­ánda sæt­inu því næsti full­trúi inn er Áslaug Frið­riks­dóttir frá D-lista og þar á eftir sjötti full­trúi á lista Sam­fylk­ing­ar­innar.

Athygli vekur að Píratar tapa fylgi í sjötta skiptið í röð. Oddviti Þ-list­ans, Halldór Auðar Svansson, er þó örugg­lega kjör­inn sem átt­undi full­trú­inn í röð­inni. Píratar sil­gdu lygnan sjó í allt vor með um 10 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni þar til halla fór undan fæti 20. maí.

Sóley Tóm­as­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, er jafn­framt nokkuð örugg­lega kjörin. Hún er, sam­kvæmt nýj­ustu spá, tíundi full­trúi inn í borg­ar­stjórn.

Nýjasta kosn­inga­spáin byggir á síð­ustu fjórum könn­unum sem birtar hafa verið. Það eru:

  • Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar sem gerð var dag­ana 12. til 15. maí.
  • Könnun Capacent/Gallup sem gerð var dag­ana 7. til 21. maí.
  • Könnun MMR sem gerð var dag­ana 20. til 23. maí.
  • Könnun MMR sem gerð var dag­ana 26. til 28. maí.

Kosn­inga­spáin verður upp­færð um leið og nið­ur­stöður nýrra kann­ana eru birtar allt fram að kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár