Björt framtíð er nú næst stærsta framboðið

Björt fram­tíð og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa skipt um sæti í stærð­ar­röð fram­boð­anna fyrir kosn­ing­arnar í Reykja­vík á laug­ar­dag­inn. Sam­fylk­ingin er enn mun stærri og mælist með 31,0 pró­sent atkvæða sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar eftir að könnun MMR síðan í dag er reiknuð með. Könnun MMR sýndi Sam­fylk­ing­una stærsta, Bjarta fram­tíð fimm pró­sentu­stigum á eftir og Sjálf­stæð­is­flokk­inn tæpum fjórum pró­sentu­stigum þar á eftir. Engin breyt­ing er á sæta­fjölda síðan í síð­ustu Kosn­inga­spá. Sam­fylk­ing er enn með fimm full­trúa og Björt fram­tíð og Sjálf­stæð­is­flokkur með fjóra hvort.

MMR mælir jafn­framt fylgi Vinstri grænna meira en fylgi Pírata í fyrsta sinn í nokkurn tíma þetta árið. Það sést ber­sýni­lega í kosn­inga­spánni því nú hefur dregið mjög saman með fram­boð­unum og er mun­ur­inn á milli þeirra innan vik­marka spár­innar. Hreyfing ann­arra minni fram­boða er innan vik­marka milli keyrslu reikni­lík­ans­ins á bak við Kosn­inga­spána. Vinstri grænir og Píratar fá enn sinn full­trú­ann hvort.

Þróun á fylgi flokka í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 26. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Hafa ber í huga að mun­ur­inn á fylgi Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks er langt innan vik­marka. Sam­fylk­ingin vera nokkuð örugg­lega stærst og með fimm full­trúa kjörna. Fjórði full­trúi Sjálf­stæð­is­manna er þó valtur; fimmt­ándi og síð­asti kjörni full­trú­inn á undan sjötta full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­valla­vina, heldur tuttug­asta sæt­inu á lista tutt­ugu efstu full­trú­anna. Framboð hennar mæld­ist með stærra móti í könnun MMR, 5,3 pró­sent svar­enda sögð­ust ætla að greiða henni atkvæði sitt.

Fimm dagar eru til kosn­inga og fram­boðin kepp­ast við að koma stefnu­málum sínum og áherslum að. Erfitt er að segja hversu mik­illa áhrifa þessa gætir í könnun MMR, sem gerð er á nokkrum dögum. Þó er aug­ljóst af línu­rit­inu hér að ofan að ein­hvers konar mynstur er að mynd­ast á fylgi flokk­anna þó nokkuð rót hafi verið á þremur stærstu fram­boð­unum.

Fjöldi fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Könnun MMR er nokkuð lítil og því fær hún minna vægi í Kosn­inga­spánni en ella. Alls svör­uðu 477 manns, þar af kaus fimmt­ungur að nefna ekki fram­boð. Könnunin var gerð á dög­unum 20. til 23. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár