Árni Sigfússon vill forstöðufólk með sér í lið

Árni Sig­fús­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ og odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í kosn­ing­unum þar, bað for­stöðu­menn í stjórn­sýslu Reykja­nes­bæjar um að skrifa greinar um sig og fjár­út­lát bæj­ar­ins til tón­list­ar­kennslu í tölvu­pósti skömmu fyrir mið­nætti 21. maí síð­ast lið­inn. Kvartar Árni þar undan því að honum þyki vanta upp á stuðn­ing kenn­ara við vel úti­lát­inn aðbúnað tón­list­ar­skól­ans sem bæj­ar­stjór­inn kom til leiðar á kjör­tíma­bil­inu sem er að ljúka.

Kjarninn hefur undir höndum tölvu­póst­sam­skipti hans og Haralds Árna Har­alds­sonar, skóla­stjóra Tón­list­ar­skóla Reykja­nes­bæjar, þar sem odd­vit­inn lýsir furðu sinni á því að hann sitji „nú undir ámæli fyrir að hafa hvergi gefið eftir í aðbún­aði fyrir tón­list­ar­skól­ann!“

Skeytið sendi Árni jafn­framt á Magnús B. Hall­björns­son og Hrefnu Gunn­ars­dóttur umsjóna­menn upp­lýs­inga- og tækni­mála hjá bæj­ar­fé­lag­inu og Brynjar Harð­ar­son skóla­safns­vörð í Heið­ar­skóla. Allir á póst­list­anum „For­stöðu­menn RNB“ fengu skeytið líka.

Haraldur Árni svarar odd­vit­anum morg­un­inn eftir með þeim fyr­ir­vara að hana ætli hann að skrifa út frá fag­legum sjón­ar­miðum, enda vilji hann ekki blanda sér í póli­tík­ina. Hann bætir við: „[...] þótt auð­vitað megi túlka slíka grein skrif­aða á þessum tíma, sem póli­tíska grein.“

Grein eftir Harald Árna fannst ekki í laus­legri vef­leit í dag. Lesa má tölvu­póst­sam­skiptin hér.

Tón­list­ar­skóli Reykja­nes­bæjar var fluttur í Hljóma­höll í vor þar sem hann komst í veg­legt hús­næði eftir að hafa liðið hús­næð­is­skort alla tíð. Fyrsta skóflustunga var tekin að hús­inu í byrjun árs 2008 og var þá áætl­aður kosn­aður við bygg­ing­una þá 1,4 millj­arðar króna. Síðan hefur verk­inu verið frestað og svo áfram haldið árið 2009 án þess að full fjár­mögnun væri fyrir hendi.

Vík­ur­fréttir greindu svo frá því í apríl í fyrra að áætl­aður kosn­aður við að ljúka fram­kvæmdum á hús­inu nemi 353 millj­ónum króna.

Lofaði Pólverjum vel launuð störf


Árni Sig­fús­son bæj­ar­stjóri komst nýlega í fréttir eftir að bréf á pólsku sem sent var á pólska inn­flytj­endur í Reykja­nesbæ þar sem við­tak­endum er lofað fjölda nýrra starfa sem launa 500 til 600 þús­und krónur á mán­uði. Atvinnu­rek­endur í bænum voru síður en svo ánægðir með útspil Árna og þykir það ólíð­andi að fram­bjóð­andi til bæj­ar­stjórnar lofi slíku fyrir hönd einka­fyr­ir­tækja.

Jafn­framt var það gagn­rýnt að Árni skuli bjóða kjós­endum sínum á bæj­ar­skrif­stof­una til skrafs í aðdrag­anda kosn­inga. Hafa mót­fram­bjóð­endur gagn­rýnt það og sagt ósmekk­legt.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks hruninn


Könnun Frétta­blaðs­ins þann 14. maí sýnir að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum hefur hrunið síðan árið 2010 þegar síð­ast var kosið til sveita­stjórna. Flokk­ur­inn, undir for­ystu Árna Sig­fús­sonar, hlaut þá 52,8 pró­sent atkvæða og fékk sjö full­trúa kjörna í bæj­ar­stjórn ell­efu full­trúa. Í könn­un­inni fær flokk­ur­inn aðeins 30,8 pró­sent. Sam­fylk­ingin er næst stærst með 19,6 pró­sent og Frjálst afl með 18,6 pró­sent. Önnur fram­boð fá um eða yfir 10 pró­sent.

Ef nið­ur­stöður könn­unar Frétta­blaðs­ins reyn­ast réttar í kosn­ingum verður Árni þó enn í lyk­il­stöðu við stjórn­ar­myndun enda dreif­ist fylgið nokkuð jafnt á aðra flokka. Áhuga­vert er jafn­framt að sjá að öll fram­boðin virð­ast vera að fá full­trúa í bæj­ar­stjórn; Sjálf­stæð­is­flokkur fær fjóra, Sam­fylk­ingin og Frjálst afl tvo hvort og Framsókn, Bein leið og Píratar deila með sér þremur full­trúum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár