Tækifæri Íslendinga liggja ekki í Norðursiglingum

Páll Her­manns­son, hag­fræð­ingur og sér­fræð­ingur á sviði flutn­inga, segir það mik­inn mis­skiln­ing að tæki­færi Íslend­inga í fram­tíð­inni liggi í sigl­ingum um Norður-Íshaf og milli Norð-Austur Asíu og Evrópu eða Norður-Ameríku. Hið rétta sé að þessi leið verði ekki sam­keppn­is­hæf­ari en helstu sigl­inga­leiðir, eins og Súes­skurð­ur­inn og Panama­skurð­ur­inn, í nán­ustu fram­tíð en sá síð­ar­nefndi verður til­bú­inn eftir stækk­un­ar­fram­kvæmdir eftir tvö ár. Þá tvö­fald­ast flutn­ings­getan um skurð­inn. „Á teikni­borð­inu eru fleiri skurðir sem stytta leiðir og auka rekstr­ar­ör­yggi fyrir skip sem eru fimmt­ungi stærri en stærstu skip nú. Slík skipa­stærð er senni­lega nálægt því hámarki sem hag­kvæmt er í rekstr­ar­legu til­liti, því stóru skipin verða að vera nærri full til að hag­kvæmni stærð­ar­innar náist,“ segir Páll í ítar­legri grein sem birt er hér á Kjarninn.is.

Ekki næg ástæða


Páll, sem hefur ára­tuga reynslu af flutn­inga­starf­semi á alþjóða­vett­vangi, meðal ann­ars í Mið-Aust­ur­löndum, segir enn fremur að stytt­ing flutn­inga­leiða með sigl­ingu um Norð­ur­slóðir sé ekki nægi­leg ástæða fyrir stærstu flutn­inga­fyr­ir­tækin í heim­inum til þess að velja þá leið fram yfir aðrar í jafn miklu mæli og margir virð­ast búast við hér á Íslandi. „Í sigl­ingum milli heims­álfa eru mjög stór skip sem lesta og losa á fjölda hafna í Asíu og Evrópu. Umræðan um sigl­ingar yfir pól­inn hefur byggst á vega­lengd frá Yokohama, sem er ein nyrsta höfnin Asíu­megin, til Rott­er­dam eða Ham­borgar í Evrópu. Hins vegar lesta og losa nær öll skip á Guang­dong-svæð­inu í Kína og flest losa og lesta í Le Havre í Frakk­landi. Því er nær að nota þessar við­mið­anir frekar en ystu hafnir, þær sem styst er á milli. Það er rétt að sigl­ing frá Yokohama til Ham­borgar væri 4.700 sjó­mílum styttri norð­ur­aust­leið­ina en suð­ur­leið­ina, 10,3 daga styttri sigl­ing á 19 sjó­mílna hraða miðað við góðar aðstæður. Sé á hinn bóg­inn miðað við síð­ustu og fyrstu stór­höfn, Yantian og Le Havre, þá er sparn­að­ur­inn ein­ungis 1.200 sjó­mílur eða minna en 3 daga sigl­ing,“ segir Páll, og bendir á nauð­syn­legt sé að byggja stefnu­mörkun þegar kemur að mál­efnum Íslands og Norð­ur­slóðum á réttum upp­lýs­ingum.

Frekar þjónusta við Grænland


„Nið­ur­staða þess­arar umfjöll­unar um gáma­sigl­ingar í Norður-Íshafi og umskipun á Íslandi er sú að orð­ræða um umskip­un­ar­höfn á Íslandi stand­ist ekki raun­sætt mat. Í því felst aftur á móti ekki gagn­rýni á önnur áform eða hug­myndir um þátt­töku Íslend­inga í starf­semi á norð­ur­slóðum. Þvert á móti telur höf­undur að með því að afgreiða umskip­un­ar­hafn­ar­draum­inn fyrir næstu ára­tugi sé betur hægt að ein­beita sér að nátt­úru­vænum tæki­færum, svo sem í þjón­ustu við Grænland,“ segir Páll.

Lesa má ítar­lega grein Páls hér, en í henni eru meðal ann­ars skýr­ing­ar­myndir um flutn­inga­kerfi heims­ins og skipa­teg­undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár