Vanhugsuð og illa undirbúin vegferð

Vorið 2006 sam­þykkti rík­is­stjórn Íslands, að til­lögu þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra Val­gerðar Sverr­is­dóttur, að hefja und­ir­bún­ing fyrir útgáfu leyfa til rann­sókna og vinnslu á olíu og gasi á norð­an­verðu Dreka­svæð­inu við Jan Mayen-hrygg­inn. Síðan þá hafa íslensk stjórn­völd gefið út þrjú sér­leyfi fyrir rann­sóknir og olíu- og gasvinnslu á svæð­inu, nú síð­ast í jan­úar á þessu ári.

Margir sjá gríð­ar­leg tæki­færi fyrir land og þjóð í kjöl­far olíu- og gasvinnslu á Dreka­svæð­inu en aðrir gjalda var­hug við fyr­ir­hug­aðum fram­kvæmdum á svæð­inu. Bæði er það af ótta við stórt umhverf­isslys og svo þykir mörgum olían vera orku­gjafi gær­dags­ins.

Sex nem­endur á félags­vís­inda­sviði Háskól­ans á Bifröst unnu nýverið miss­er­is­verk­efni undir yfir­skrift­inni: „Íslensk olíu­vinnsla: Hver yrðu mögu­leg umhverf­is­á­hrif við Ísland ef olíuslys, á borð við Exxon Valdez, yrði innan íslenskrar land­helgi?“ Í verk­efni sex­menn­ing­anna var rýnt í olíuslysið sem varð við strönd Alaska árið 1989, hvaða beinu og óbeinu umhverf­is­á­hrif urðu þar og þau heim­færð yfir á íslenskar aðstæður. Hér á eftir verður stiklað á stóru um niður­stöður sex­menn­ing­anna, sem eru þær helstar að miklum fjár­munum hafi verið varið í mögu­lega olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu án þess að líf­ríki og umhverfi svæð­is­ins hafi verið rann­sakað í þaula.''


Áhrifa Exxon Valdez-slyssins gætir enn


Hinn 24. mars árið 1989 strand­aði olíu­flutn­inga­skipið Exxon Valdez á skeri í Prince William-sundi úti fyrir ströndum Alaska. Í tönkum skips­ins var tæp­lega 201 milljón lítra af hrá­olíu og lak 41 milljón lítra í hafið. Orsök slyss­ins má ekki síst rekja til mann­legra mis­taka en auk þess var eft­ir­liti stjórn­valda ábóta­vant.
Árið 2000 fóru 128 inn­lend og erlend olíu­flutn­inga­skip um sigl­ing­ar­leiðir sunnan Íslands, með um 800 þús­und tonn af olíu inn­an­borðs. Um átta­tíu olíu­flutn­inga­skip flytja olíu til Íslands á ári hverju með um þrjá­tíu þús­und tonn af olíu hvert. Auk þess sigla um þús­und vöru­flutn­inga­skip með um fimmtán hund­ruð tonn af elds­neyt­is­olíu hvert til lands­ins. Hefjist olíu­fram­leiðsla á Dreka­svæð­inu er við­búið að þessi fjöldi muni marg­fald­ast.

Exxon-olíu­fyr­ir­tækið var dæmt til að greiða fimm millj­arða Banda­ríkja­dala í skaða­bætur í kjöl­far slyss­ins en eftir röð áfrýj­ana var sú upp­hæð lækkuð í 507 millj­ónir dala.
Olían sem fór í hafið í slys­inu hafði gríð­ar­leg umhverf­is­á­hrif á svæð­inu. Alls urðu um ríf­lega tvö þús­und kíló­metrar af strand­lengj­unni fyrir beinum umhverf­is­á­hrifum, sem raskaði líf­ríki svæð­is­ins veru­lega. Vega­lengdin sem um ræðir er álíka og frá Húsavík austur til Víkur í Mýrdal. Fiski­stofnar, fuglar og spen­dýr urðu illa úti, tals­verð rýrnun varð á ýmsum dýra­stofnum, til að mynda laxa­stofni svæð­is­ins. Þá er talið að um 250 þús­und lang­víur hafi drep­ist í kjöl­far slyss­ins.

Slysið hafði ekki aðeins bein umhverf­is­á­hrif heldur einnig óbein áhrif á atvinnu­vegi og íbúa svæð­is­ins. Atvinnu­veg­irnir sam­an­stóðu helst af fisk­veiðum og ferða­þjón­ustu. Árið 1989 tók gildi víð­tækt bann við fisk­veiðum á Prince William-sundi og nær­liggj­andi svæðum vegna olíu­meng­unar. Tekjutap vegna þessa var gríð­ar­legt, en áhrifa slyss­ins á fisk­veiðar gætir enn á svæð­inu. Síld­ar­stofn­inn á svæð­inu hefur ekki náð sér á strik síðan og því eru síld­veiðar þar enn í algjöru lág­marki.

Ferða­þjón­usta á svæð­inu beið tölu­verðan skaða, þar sem straumur ferða­manna dróst veru­lega saman eftir slysið. Ímynd svæð­is­ins sem ósnortin nátt­úruperla beið veru­legan hnekki, en talið er að fjár­hags­legt tap vegna þessa hafi numið um 2,8 millj­örðum dala.

Rannsóknum á lífríki Drekasvæðisins ábótavant


Í áliti Nátt­úru­fræði­stofn­unar, sem unnið var að beiðni Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins, að rann­sóknum á líf­ríki Dreka­svæð­is­ins sé ábóta­vant. Í álit­inu bendir stofn­unin á mik­il­vægi þess að íslenska ríkið legg­ist í nauð­syn­legar rann­sóknir sem til þurfi til að gera sér grein fyrir þeim skaða sem hlit­ist getur af olíu­leit og olíu­vinnslu.
Ef olíuslys verður innan íslensku lög­sög­unnar skiptir veð­ur­far, haf­straumar, sjáv­ar­falla- og vind­straumar veru­legu máli svo hægt sé að spá fyrir um afdrif og bein umhverf­is­á­hrif af völdum olí­unnar. Upp­lýs­ingar um veð­ur­far á Dreka­svæð­inu eru af skornum skammti og að mestu fengnar með óbeinum mæl­ingum frá landi sem gefa ansi óljósa mynd af veðri, sjáv­ar­hita, sjó­lagi og hafís á svæð­inu.

Á Norð­ur­landi eru þrír stórir upp­sjáv­ar­stofnar; loðna, síld og kolmunni. Loðnan og síldin fara lík­lega um Dreka­svæðið þar sem olíu­leit og vinnsla er fyr­ir­huguð, og þá eru fjöl­breyttir hvala­stofnar á svæð­inu við Jan Mayen ásamt fjöl­breyti­legu líf­ríki á hafs­botni. Þá er þar að finna seli og hvíta­birni.

Loðnan hélt sig nærri Jan Mayen á níunda ára­tugnum. Á þeim tíma var hún veidd þar sem nú eru uppi áform um olíu­vinnslu. Margt bendir til að útbreiðsla og göngur loðn­unnar hafi breyst og hún haldi sig nú nær vest­ur­hluta Íslands­hafs og í Græn­lands­sundi, fjarri olíu­leit­ar­svæð­inu. Ómögu­legt er að segja til um hvort þessi ganga og útbreiðsla hennar sé var­an­leg og allt eins lík­legt er að stofn­inn færi sig aftur á Dreka­svæðið og þá hefur norsk-íslenski síld­ar­stofnin um ára­bil haldið sig nálægt olíu­leit­ar­svæð­inu við Jan Mayen.
Telja má að fjöl­skrúð­ugt fugla­líf finn­ist á Dreka­svæð­inu. Þar eru margar sjó­fugla­teg­undir sem yrðu í hættu ef meng­unar­slys af völdum olíu yrði á svæð­inu. Miðað við rann­sóknir eru algeng­ustu fugla­teg­und­irnar sem halda sig á fyr­ir­hug­uðu olíu­leit­ar­svæði: rita, fýll, stutt­nefja, lang­vía, álka, lundi og haftyrð­ill. Þetta eru með allra algeng­ustu sjó­fugla­teg­undum í Norður-Atl­ants­hafi.

Ísland hvergi nærri tilbúið undir stórt olíuslys


Nátt­úru­fræði­stofnun hefur lagt ríka áherslu á að stjórn­völd kort­leggi hvaða þætti þurfi að hafa í huga í ljósi fyrir­hug­aðrar olíu­vinnslu, eins og áður segir. Þætti eins og líf­ríki, vind- og haf­strauma og sam­spil mis­mun­andi umhverf­is­þátta, sér­stak­lega með til­liti til meng­un­ar­slysa. Sökum kulda og við­kvæms líf­ríkis á norð­ur­slóðum geta meng­un­ar­slys þar haft mjög alvar­leg áhrif. Kuldi hægir á upp­gufun olí­unnar og hægir á nið­ur­brots­ferli hennar.

Á Íslandi eru engar við­bragðs­á­ætl­anir til til að takast á við stórt olíuslys. Til að mynda er ekk­ert íslenskt skip sem getur dregið hund­rað þús­und tonna olíu­flutn­inga­skip, strandi það eða bili við strendur Íslands. Sá bún­aður sem Umhverf­is­stofnun býr yfir er ein­göngu fyrir lítil eða með­al­stór olíuslys sem verða nærri landi. Ísland er þannig hvergi nándar nærri til­búið að takast á við stór slys á hafi úti og myndi þá neyð­ast til að leita sér utan­að­kom­andi aðstoðar, til að mynda frá Norð­ur­lönd­unum eða Evr­ópu­sam­band­inu. Það mun valda því að við­braðs­tím­inn verður langur og útbreiðsla og áhrif olíu­leka gætu orðið mikil.

Áhrifa olíuslyss myndi gæta víða


Eins og áður segir er við­búið að umferð olíu­flutn­inga­skipa muni marg­fald­ast sam­hliða olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu. Ljóst er að olíuslys, sam­bæri­legt við Exxon Valdez-slysið, myndi hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir helstu fiski­stofna lands­ins og líf­ríkið. Við suður- og suð­vest­ur­strönd lands­ins eru til að mynda margar mik­il­vægar hrygn­ing­ar­stöðvar fiski­stofna, og má þar nefna ýsu, þorsk, loðnu, ufsa og síld. Ef olíuslys yrði á þessu svæði gæti það haft mikil áhrif á allt vist­kerfi þess­ara stofna.

Grunn­stoðir hag­kerf­is­ins byggja á far­sælum og nýtan­legum fiski­miðum við landið og efna­hags­lög­saga Íslands býr yfir einum auð­ug­ustu fiski­miðum Norður-Atl­ants­hafs­ins. Öll stór­vægi­leg röskun á þess­ari auð­lind myndi aug­ljós­lega hafa gríð­ar­leg áhrif á íslenskt sam­fé­lag, bæði efna­hags- og félags­lega.

Árið 2012 var heild­ar­út­flutn­ingur Íslend­inga ríf­lega þús­und millj­arðar króna. Þeir fiski­stofnar sem væru í hvað mestri hættu eru tæp­lega sextán pró­sent af þessum út­flutn­ingi. Ef fiski­stofn­arnir myndu skað­ast er ófyr­ir­séð hvort og hvenær þeir myndu ná sér aftur að fullu. Ljóst er að slíkt myndi hafa geig­væn­leg marg­feld­is­á­hrif á íslenskt sam­fé­lag og efna­hag. Olíuslys gæti líka haft ófyr­ir­séðar afleið­ingar fyrir fisk­eldi við strendur Íslands og hval­veiðar.

Umhverf­isslys á borð við Exxon Valdez-slysið myndi ekki síst hafa gríð­ar­legar afleið­ingar á ferða­þjón­ust­una um ókomin ár. Ferða­þjón­ustan hér á landi er orðin stór atvinnu­grein, eins og í Alaska fyrir olíuslysið. Olíuslys myndi sverta orð­spor lands­ins, en óspillt nátt­úra er helsta sölu­vara íslenskrar ferða­þjón­ustu og skað­inn myndi helst bitna á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sem reiða sig á heil­brigt sjávar- og dýra­líf.

Möguleg umhverf­is­á­hrif við Ísland í kjöl­far umhverf­isslys á borð við Exxon Valdez yrðu því bæði nei­kvæð og mikil, ekki síst vegna hætt­unnar á því að fiski­stofnar, dýr og annað líf­ríki væri í mik­illi hættu vegna meng­un­ar­innar sem olíuslys geta haft í för með sér. Óbein áhrif slíks olíuslys eru ekki síður alvar­leg, en áhrifin á sjáv­ar­út­veg­inn og ferða­þjón­ust­una yrðu lík­lega þau verstu. Olíuslys í íslenskri land­helgi myndi því alltaf hafa slæm bein og óbein umhverf­is­á­hrif, og tjón af völdum þess yrði seint bætt að fullu.

Sláandi hvað við erum illa undirbúin


Gunnar Jökull Karlsson segir sex­menn­ing­anna hafa ráð­ist í verk­efnið vegna þess hve lítið mögu­leik­inn á að hér verði olíuslys hafi verið ræddur. „Auk þess hafa orðið veru­lega slæm slys af þessu tagi að und­an­förnu, meðal ann­ars á Mexík­óflóa og eins í Michigan-vatni í Banda­ríkj­unum. Okkur fannst slá­andi hversu illa und­ir­búin við erum og hversu fáar rann­sóknir hafa verið gerðar á líf­ríki Dreka­svæð­is­ins, þar sem olíu­leitin fer fram. Okkur fannst það bera vott um skamm­sýni af hálfu stjórn­valda að gefa út leyfi til olíu­leitar án þess að rann­saka þessa hluti betur,“ segir Gunnar Jökull.

Hann segir verk­efni sex­menn­ing­anna hafa vakið við­brögð víða. „Að vissu leyti kom það skemmti­lega á óvart að við­brögðin hafa verið jákvæð, en við bjugg­umst jafn­vel frekar við nei­kvæðum við­brögðum, þar sem um er að ræða eitt­hvað sem hugs­an­lega gæti gefið vel í aðra hönd. Þetta gæti stafað af því að þetta sjón­ar­horn á olíu­leit­ina hefur ekki verið skoðað að neinu ráði, heldur hefur frekar verið reynt að sýna fram á það að mögu­legur olíu­gróði eigi eftir að gera okkur öll mold­rík. Kannski höfum við verið að svara ein­hverri þörf eða eft­ir­spurn með því að skoða þessi mál frá öðru sjón­ar­horni. Að okkar mati er það hið besta mál og von­andi verður þetta til þess að víkka umræð­una um olíu­ævin­týrið enn frekar,“ segir Gunnar Jökull að lokum.

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst, með ítar­efnum, í síð­ustu útgáfu Kjarnans. Hana má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár