Norðlenska kaupir fasteignir Vísis á Húsavík

Kjöt­vinnslu­fyr­ir­tækið Norð­lenska hefur keypt allar fast­eignir útgerð­ar­fé­lags­ins Vísis hf. á Húsavík. Um er að ræða frysti­geymslur og vinnslu­sal fyr­ir­tæk­is­ins, skrif­stofur, gisti­heim­ili og geymslur, alls um 5 þús­und fer­metra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Sig­mundur Ófeigs­son, fram­kvæmda­stjóri Norð­lenska, og Pétur Haf­steinn Pálsson, for­stjóri Vísis, eru skrif­aðir fyrir en sam­komu­lag vegna við­skipt­anna var und­ir­ritað í dag. Heiðrún Jóns­dóttir, stjórn­ar­for­maður Norð­lenska, og Pétur Haf­steinn gengu frá sam­komu­lag­inu í dag (sjá mynd).

Ákvörðun um sölu fast­eign­anna var tekin í kjöl­far ákvörð­unar Vísis um að flytja starf­semi sína frá Húsavík til Grinda­víkur, en for­svars­menn Vísis lögðu áherslu á að áfram yrði atvinnu­rekstur í hús­næð­inu, og hófust við­ræður við Norð­lenska fljót­lega eftir að ákvörðun um flutn­ing lá fyrir. Eins og fram hefur komið var ákvörðun Vísis um flutn­ing á starf­semi til Grinda­víkur, einnig á Þingeyri og Djúpa­vogi, íbúum mikið áfall og var mót­mælt harð­lega.

„Með kaup­unum mætir Norð­lenska þörf fyr­ir­tæk­is­ins fyrir aukið frysti­rými á Húsavík en um leið skap­ast tæki­færi fyrir frek­ari starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á staðnum sem verða tekin til skoð­unar á næstu vikum og mán­uðum. Starfs­manna­stjóri Norð­lenska mun í fram­haldi af kaup­unum ræða við þá starfs­menn sem ekki þáðu störf hjá Vísi í Grinda­vík um mögu­leika þeirra til vinnu hjá félag­inu“ segir í til­kynn­ingu frá Norð­lenska vegna kaupanna.

Norð­lenska er eitt stærsta og öfl­ug­asta fram­leiðslu­fyr­ir­tæki lands­ins á sviði kjöt­vöru. Fyr­ir­tækið er með starfs­stöðvar á Akureyri, Húsavík, í Reykja­vík og á Höfn í Horna­firði. Höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru á Akureyri en þar er einnig stór­gripa­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla. Á Húsavík er sauð­fjár­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla. Fyr­ir­tækið er enn­fremur með sölu­skrif­stofu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sauð­fjár­slát­ur­hús á Höfn.

Hjá Norð­lenska eru um 190 heils­árs­störf, þar af eru 45 heils­árs­störf á Húsavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár