Fylgið stöðugt átta dögum fyrir kosningar

Könnun Capacent Gallup stað­festir þær fylg­is­sveiflur sem urðu í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings fyrr í vik­unni. RÚV greindi frá Þjóð­ar­púlsi Gallup í fréttum sínum í gær­kvöldi og var könn­unin vegin inn í Kosn­inga­spána í morgun. Nið­ur­staða Þjóð­ar­púls­ins er nánást sú sama og útkoman í Kosn­inga­spánni 20. maí. Sam­fylk­ingin er enn stærst, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist fastur undir 25 pró­sentum og Björt fram­tíð fylgir fast á eftir.

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar HÍ síðan 15. maí, sem sýndi gríð­ar­legar fylg­is­sveiflur á þremur stærstu fram­boð­unum virð­ist því hafa verið frá­vik og ekki sýna rétta mynd af þýð­inu. Þar mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með aðeins 21,5 pró­sent fylgi og þrjá full­trúa, Sam­fylk­ingin mun stærri og Björt fram­tíð með 22,2 pró­sent. Kosn­inga­spáin sann­aði gildi sitt þar sem áhrif könn­unnar Félaga­s­vís­inda­stofn­unnar voru vegin og nið­ur­stöð­urnar því ekki eins dramat­ískar.

Þróun á fylgi flokka í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 20. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Engar breyt­ingar verða á fjölda full­trúa með Þjóð­ar­púlsi Gallup. Sam­fylk­ingin er enn með fimm full­trúa, Sjálf­stæð­is­flokkur með fjóra eins og Björt fram­tíð. Framboð Pírata og Vinstri grænna fá einn full­trúa hvort.

Skipting sæta er almennt mjög stöðug milli kann­anna nema á sætum 15 til 20. Nú mætti nán­ast kasta upp á það hvort fimmt­ánda sætið falli með fjórða manni á lista Bjartrar fram­tíðar eða sjötta manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Hvorn veg­inn sem það færi héldi meiri­hlut­inn með níu full­trúum af þeim 15 sem kjörnir eru. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eins og stendur nokkuð öruggur með fjóra full­trúa kjörna.

Fjöldi kjörinna fulltrúa


[visualizer id="4611"]

Tvær nýj­ustu kann­an­irnar (FHÍ 20. maí og Þjóð­ar­púls­inn 22. maí) vega um 80 pró­sent í Kosn­inga­spánni en eldri kann­anir hanga enn inni með um það bil sjö pró­sent vægi. Ný könnun frá Frétta­blað­inu gæti dreift áhrif­unum meira og gert spánna betri. Best er að geta þess að könnun Capacent Gallup var gerð á dög­unum 7. til 21. maí.

Bætt við 23. maí klukkan 14:26:

Niðurstöðurnar sláandi


Viktor Orri Val­garðs­son, verk­efna­stjóri hjá Félags­vís­inda­stofnun, segir að nið­ur­stöður könn­unar þeirra sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 20. maí hafi vissu­lega verið nokkuð slá­andi en þó í ágætu sam­ræmi við þá þróun á fylgi flokk­anna sem virt­ist hafa átt sér stað. Könnun Þjóð­ar­púls Gallup sem RÚV greindi frá í gær hafi verið innan vik­marka könn­unar Félags­vís­inda­stofn­unnar.

„Þetta getur líka skýrst af því að könnun þeirra var fram­kvæmd yfir lengra tíma­bil, lauk síðar og með stærra úrtaki heldur en okkar,“ segir Viktor Orri þegar eftir skýr­ingum á mun­inum á síð­ustu tveimur könnum var leitað. „Það má sumsé vel vera að þeirra könnun (Þjóð­ar­púls Gallup) gefi rétt­ari mynd af stöð­unni í dag en það þýðir alls ekki að okkar könnun hafi gefið ranga mynd af þýð­inu á sínum tíma.“

Félags­vís­inda­stofnun úti­lokar þó ekki að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hafi verið ofmetið í könn­un­inni 20. maí, þó merki um það finn­ist ekki þegar mis­mun­andi svar­leiðir (síma- og netsvör) séu bornar saman.

Ný könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar á fylgi fram­boð­anna í Reykja­vík er vænt­an­leg í næstu viku. Kosn­ingar fara fram laug­ar­dag­inn 31. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár