Stórkostleg lið sem ekki unnu HM

HM í fót­bolta hefst í Brasilíu 12. júní. Í gegnum tíð­ina hafa bestu knatt­spyrnu­menn heims­ins sýnt listir sínar á þessu stærsta sviði fót­bolt­ans sem aðeins er opið á fjög­urra ára fresti. Það geta ekki allir staðið uppi sem sigur­veg­arar. Kjarninn fór yfir magn­aða sögu HM og valdi tíu lið sem ekki tókst að verða heims­meist­ari en höfðu leik­menn og snilli til þess að fara alla leið. Ef heppnin hefði verið með þeim, og kannski örlítið meira til. Mörg eru til­kölluð en fá útvalin. Stundum virt­ist nán­ast forms­at­riði að verða meist­ari en allt kom fyrir ekki.

10. sæti
Argent­ínu­menn eru ávallt eitt af sig­ur­strang­leg­ustu lið­unum fyrir fram og 2006 liðið þótti ein­stak­lega vel mannað. Liðið var byggt í kringum Juan Román Riquelme, miðju­mann Vill­ar­r­eal, sem stýrði sókn­ar­leiknum eins og her­for­ingi. Fyrir framan hann spil­uðu Hernán Crespo og Javier Saviola og til vara ungst­irnin Carlos Tevez og Lionel nokkur Messi. Valencia-leik­mað­ur­inn Roberto Ayala stýrði vörn­inni og einn besti leik­maður liðs­ins, Javier Mascherano, batt saman vörn og miðju. Þjálf­ar­inn José Pekerman var með afbragðslið í hönd­unum sem hefði átt að fara miklu lengra en það gerði. Argent­ínu­menn lentu í svoköll­uðum dauð­ar­iðli sem þeir áttu þó ekki í miklum erf­ið­leikum með að toppa. Helst ber að nefna 6-0 sigur á sterku varn­ar­liði Serba. Eftir 2-1 sigur á Mexíkóum í 16 liða úrslitum var síðan komið að gest­gjöf­unum Þjóð­verjum. Argent­ínu­menn yfir­spil­uðu heima­menn og leiddu leik­inn allt þar til að Pekerman tók eina óskilj­an­leg­ustu ákvörðun HM-sög­unnar, þ.e. hann tók Riquelme og Crespo af velli og bakk­aði með liðið. Þjóð­verjar jöfn­uðu í kjöl­farið og unnu síðan í víta­spyrnu­keppni. Svo sárir og reiðir voru Argent­ínu­menn að slags­mál brut­ust út eftir leik­inn. Jafnvel óskilj­an­legri hlutur gerð­ist svo eftir mótið þegar tveir af efni­leg­ustu leik­mönnum heims, Mascherano og Tevez, skrif­uðu undir samn­ing hjá West Ham United.

Sjá má glæsi­legt mark Argent­ínu gegnum Serbum á HM 2006 hér.

Þetta er aðeins hluti umfjöll­un­ar­innar. Lestu meira um málið í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár