Samfylkingin étur fylgi Sjálfstæðisflokks

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar manni til Bjartar fram­tíðar á milli útreikn­inga kosn­inga­spár­innar. Þetta eru nið­ur­stöður spár­innar eftir að könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar HÍ sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag var reiknuð með. Sam­fylk­ingin er enn stærsta stjórn­mála­aflið í Reykja­vík með 32 pró­senta fylgi, mesta fylgi nokk­urs fram­boðs síðan kosn­inga­spáin var fyrst reiknuð í febr­úar.

Besti flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin mynd­uðu meiri­hluta í borg­ar­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2010 og sitja með níu full­trúa nú. Besti flokk­ur­inn býður nú fram undir merkjum Bjartrar fram­tíðar. Saman fá þessi fram­boð níu full­trúa kjörna gangi kosn­inga­spá dags­ins eftir.

Fylgi framboða til borgarstjórnar í Reykjavík

[visualizer id="4609"]


Fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar má nán­ast alla skýra með fylgis­tapi Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan 9. maí síð­ast­lið­inn. Fram­boðin voru bæði með fimm full­trúa í síð­ustu spá en könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar hefur mikil áhrif á útkom­una, enda hafa kann­anir þaðan reynst nokkuð mark­tækar. Í könn­un­inni í dag mælist Sam­fylk­ingin með sex full­trúa, Björt fram­tíð með fjóra en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðeins þrjá. Píratar og Vinstri grænir fá sinn full­trú­ann hvort. Kosn­inga­spáin vegur könn­un­ina á móti þremur síð­ustu könn­unum og því eru fylg­is­sveifl­urnar ekki eins dramat­ískar og í nýj­ustu könn­un­inni. Þó er rétt að nefna að mest hreyf­ing hefur verið á fylgi fram­boð­anna í mæl­ingum Félags­vís­inda­stofn­unnar og því áhuga­vert að sjá næstu könnun sem hugs­an­lega stað­festir þessar fylg­is­sveiflur.

Röðun fulltrúa samkvæmt nýjustu spá

[visualizer id="4611"]


Píratar, Vinstri græn og Framsókn tapa öll fáeinum pró­mílum á milli kosn­inga­spáa en Dögun fær­ist upp um 0,4 pró­sentu­stig. Það dugar þó ekki til að krækja í sæti á lista 20 efstu fram­boð­enda. Fimmtán ná kjöri en í sext­ánda sæti situr nú sjötti maður Sam­fylk­ing­ar­innar og þar á eftir annar full­trúi Pírata. Oddviti Fram­sóknar og flug­valla­vina er ekki lengur á lista tutt­ugu efstu.

Þróun á fylgi flokka í Reykjavík

Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 20. maí 2014.

[visualizer id="4616"]

Kannanir í kosningaspá 20. maí 2014:



  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 29. apríl.

  • Könnun Félags­vís­ind­ast. fyrir Morg­un­blaðið 29. apríl-6. maí.

  • Þjóð­ar­púls Capacent 15. apríl – 7. maí.

  • Könnun Félags­vís­ind­ast. fyrir Morg­un­blaðið 12. – 15. maí.


Vikmörk í kosn­inga­spá 20. maí 2014: 1,1 pró­sent til 3,8 pró­sent. Nið­ur­stöður nýj­ustu kosn­inga­spár­innar verða birtar í heild sinni í Kjarn­anum á fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár