Djúpavogshreppur gagnrýnir stjórnvöld í nýju myndbandi

Djúpa­vogs­hreppur hefur birt mynd­band á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins og Youtube þar sem ákvörðun útgerð­ar­fé­lags­ins Vísis, um að hætta fisk­vinnslu í bænum, og við­brögð stjórn­valda í kjöl­farið eru harð­lega gagn­rýnd.

Mark­miðið með gerð mynd­bands­ins, sem unnið var með stuðn­ingi AFLs starfs­greina­fé­lags, er að vekja almenn­ing og stjórn­völd til umhugs­unar um stöðu Djúpa­vogs­hrepps og ágalla fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins, sem smærri byggðum lands­ins er gert að búa við, að því er segir í til­kynn­ingu. Þar segir jafn­framt að kerfið vegi með ómann­úð­legum og óvægnum hætti að til­veru fólks í land­inu með stuðn­ingi stjórn­valda. Íbúar Djúpa­vogs­hrepps krefj­ast aðgerða af hálfu stjórn­valda um að tryggja byggð­inni sann­gjarna hlut­deild í hinni sam­eig­in­legu auð­lind.

Mynd­bandið og við­fangs­efni þess fá umfjöllun í Kast­ljósi á RÚV í kvöld en þar verður rætt við Gauta Jóhann­es­son, sveit­ar­stjóra. Í lok mynd­bands­ins birt­ist setn­ingin: "Deilið þessu mynd­bandi í þágu rétt­lætis og bar­áttu fyrir smærri byggðir í land­inu."


Með ákvörðun Vísis missa um tutt­ugu og fimm starfs­menn Vísis vinn­una á Djúpa­vogi. Hluta þeirra hefur verið boðið að flytj­ast til Grinda­víkur, þangað sem starf­semin verður flutt. íbúar Djúpa­vogs­hrepps eru 470 tals­ins.

Heima­menn­irnir Sigurður Már Dav­íðs­son og Skúli Andr­és­son sáu um vinnslu mynd­bands­ins fyrir Djúpa­vogs­hrepp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár