Er aukinn ójöfnuður eina framtíðin?

…allir borg­arar ættu að kynna sér pen­inga, hvaða mæli­kvarðar eru nýttir á pen­inga, hvaða stað­reyndir tengj­ast pen­ingum og sögu pen­inga. Þeir sem eiga mikla pen­inga bregð­ast aldrei í því að verja hags­muni sína. Að neita að eiga við tölur þjónar hins vegar sjaldn­ast hags­munum hinna tekju­minni.“ (577)

Einhvern veg­inn þannig mætti snúa loka­orðum bókar franska hag­fræð­ings­ins Thomas Piketty, Capital in the Twenty-First Century, yfir á íslensku en ensk þýð­ing bók­ar­innar hefur náð efst á met­sölu­lista bæði vestan og austan hafs. Bókin hefst á umfjöllun Pikettys um þróun hag­fræð­innar sem hann horfir gagn­rýnið á, ekki síst í Banda­ríkj­unum sem hann telur smám saman hafa þró­ast út í óhlut­bundnar stærð­fræði­for­múlur sem ekki bygg­ist á raun­gögnum og hafi litla þýð­ingu fyrir sam­fé­lagið. Þannig hafi hag­fræð­ingar heims­ins van­rækt að rann­saka vax­andi ójöfnuð í heim­inum en lagt ofur­trú á kenn­ingu Kuznets um að vöxtur leiði sjálf­krafa til auk­ins jöfn­uðar (15-16).

Sú aðferð að tengja hag­fræði við önnur vís­indi, sér­stak­lega sögu og félags­vís­indi en líka t.d. bók­menntir, er vissu­lega frá­brugðin þeirri fræða­hefð sem les­endur eiga að venj­ast frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Piketty tengir saman sögu­lega, félags­lega og efna­hags­lega þróun og hvernig sögu­legir við­burðir og póli­tískar ákvarð­anir hafa haft áhrif á þróun jöfn­uðar í heim­inum. Honum eru hug­leiknar skáld­sögur Jane Austen og Honoré de Balzac og hvernig lýs­ingar þeirra á mann­líf­inu eru mik­il­væg heim­ild um sam­fé­lags­upp­bygg­ingu þess tíma. Þessar teng­ingar gera það að verkum að það er auð­velt og skemmti­legt að lesa bók Pikettys og les­and­inn fær betri inn­sýn í það sem Piketty telur hafa áhrif á jöfnuð, bæði sögu­lega við­burði, lýð­fræði­lega þróun, áherslur í menntun og skatt­lagn­ingu.

Rauður þráður í gegnum bók­ina er sú meg­in­kenn­ing að þegar rentan af auð­magn­inu sé meiri um nokk­urt skeið en vöxtur sé það mjög öfl­ugur hvati til auk­ins ójafn­aðar. (361) Piketty rök­styður það m.a. með því að vöxtur miðað við höfða­tölu til lengri tíma sé sjaldn­ast meiri en 1,5% og fer yfir vöxt, t.d. í V-Evrópu, Banda­ríkj­unum og Japan, á árunum 1990 til 2012 máli sínu til stuðn­ings. (95-96) Þegar rentan af auð­magn­inu verði meiri en almennur vöxtur þýði það að auður þeirra sem mesta rentu fái af sínu auð­magni vaxi hraðar en kjör almenn­ings. Þegar auður sé orð­inn til vaxi hann af innri kröftum; því meiri auður, þeim mun hraðar vaxi hann.

Piketty setur þetta í sam­hengi við stöð­una í sam­tím­anum, en út frá þeim gögnum sem hann hefur rann­sakað á rík­asta 0,1% pró­sentið um það bil 20% af öllu auð­magni í heim­inum og auð­ug­asta eina pró­sentið (um 45 millj­ónir manna) á um 50% af öllum auði heims­ins. Ójöfn­uð­ur­inn er enn meiri hnatt­rænt vegna þess að ójöfn­uður milli heims­horna er mik­ill. Piketty telur að á þess­ari þróun sé ein­ungis unnt að hægja með fram­sæknu skatt­kerfi. (438) Auð­ug­asta eina pró­sentið fái tekjur sínar í gegnum fjár­magnið – næstu níu pró­sentin fremur í gegnum laun (þar má finna fram­kvæmda­stjóra á ofur­launum). Ríkustu 10 pró­sentin eigi um 60% þjóð­ar­auðs­ins í flestum Evr­ópu­ríkjum (Frakk­landi, Þýska­landi, Bret­landi og Ítalíu). Fátæk­ustu 50 pró­sentin eiga minna en tíu (jafn­vel fimm) pró­sent af þjóð­ar­auðnum. (257).

Stríð og skattar


Capital in the Twenty-First Century er ekki síður sagn­fræði en hag­fræði enda telur Piketty að sögu­legir við­burðir hafi stundum skapað auk­inn jöfnuð. Þannig hafi heims­styrj­ald­irnar tvær orðið til þess að efna­fólk missti tals­vert af eigum sínum og vest­ræn ríki orðið að beita auk­inni skatt­lagn­ingu á hátekju­fólk til að standa undir stríðs­rekstr­inum. Að sama skapi hófst tíma­bil mik­ils vaxtar í Evrópu eftir seinna stríð sem varð til þess að almenn­ingi vegn­aði vel, víða höfðu einka­fyr­ir­tæki færst í opin­bera eigu eftir stríð sem skil­aði sam­fé­lag­inu auknum auði og víða var komið upp þrepa­skiptu skatt­kerfi sem dreifði skatt­byrð­inni ólíkt á hópa þannig að hinir efna­meiri báru meiri byrðar en hinir tekju­lægri. Minni sam­þjöppun auðs nú en undir lok 19. aldar og í byrjun þeirrar tutt­ug­ustu er þannig fyrst og fremst vegna til­tek­inna sögu­legra við­burða og stjórn­valds­að­gerða. Piketty rekur svo hvernig póli­tískar ákvarð­anir á níunda ára­tug tutt­ug­ustu aldar sneru þess­ari þróun við. Áður en kyndil­berar nýfrjáls­hyggj­unnar, Ronald Reagan og Margaret Thatcher, komust til valda á Bret­landseyjum og í Banda­ríkj­unum, höfðu Bretland og Banda­ríkin gengið mjög langt í skatt­lagn­ingu á ofur­tekjur og verið þar með skatt­pró­sentu yfir 90%, sem var mun lengra gengið en í öðrum löndum, s.s. Frakk­landi og Þýska­landi, sem voru mun íhalds­sam­ari. Þetta skatt­hlut­fall var keyrt mjög hart niður á níunda ára­tugnum, allt niður í 28% árið 1986 í Banda­ríkj­unum. Nú er deilt um það hvort Obama muni hækka þessa skatt­pró­sentu upp í 40% á meðan hann er í emb­ætti og það talið ólík­legt.

Piketty telur hins vegar það vera (sjálfs)blekk­ingu að halda að eðli hag­vaxtar eða mark­aðslög­málin muni tryggja minnk­andi ójöfnuð í takt við fræga kenn­ingu Kuznets. (376) Ekki síst þegar lýð­fræði­leg þróun bendir til þess að arfur muni skipta meiru í V-Evrópu og Banda­ríkj­unum (þ.e. minni fjölgun, færri börn, meiri eignir ganga í erfðir) og þannig auk­ist ójöfn­uður, sér­stak­lega ef skatt­lagn­ingu er ekki beitt með mark­vissum hætti. Þannig telur hann að skatt­lagn­ing sé EKKI tækni­legt úrlausn­ar­efni heldur póli­tískt og heim­speki­legt við­fangs­efni. (493). Þrepa­skipt skatt­kerfi sé grund­vallar­stólpi vel­ferð­ar­kerf­is­ins sem gegndi lyk­il­hlut­verki við upp­bygg­ingu þess á 20. öld sem og við að auka jöfnuð á þeim sama tíma. (497)
Piketty telur ójöfn­uð­inn í Banda­ríkj­unum eina orsök fjár­málakrepp­unnar, en vax­andi ójöfn­uður leiddi til þess að kaup­máttur lág- og milli­stétta staðn­aði með þeim afleið­ingum að þau heim­ili skuld­settu sig frekar og nýttu sér ódýrt láns­fjár­magn sem afreglu­væddir bankar buðu upp á. Þannig stuðl­aði ójöfn­uð­ur­inn að auk­inni skuld­setn­ingu lág- og milli­stétt­ar­innar og fjár­hags­legur óstöð­ug­leiki jókst. (297) Þannig sé jöfn­uður einn þáttur í að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Hnattvætt skattkerfi?


En Piketty er ekki með ein­faldar lausnir á þessu við­fangs­efni. Hann segir að hnatt­væddur skattur sé því miður óraun­hæft mark­mið en hugs­an­lega væri hægt að taka upp svæð­is­bundna skatta eða álfu­skatta og jafn­vel sé þannig hægt að koma á hnatt­væddum þrepa­skiptum skatti á fjár­magn í áföngum. Það sé besta leiðin ásamt auknu gagn­sæi í kringum alþjóð­lega fjár­magns­flutn­inga og við­skipti til að tryggja jöfnuð til fram­tíðar (515). Þetta er lík­lega útópísk lausn og kallar á mjög þétta alþjóð­lega sam­vinnu og mikið gagn­sæi sem eru nauð­syn­legar for­sendur hnatt­ræns jafn­aðar. Kerfið er nú mjög ógagn­sætt, sem birt­ist t.d. í því að upp­lýs­ingar um millj­arða­mær­inga heims­ins liggja hvergi fyrir, helsta heim­ild er millj­arða­mær­inga­tal Forbes sem bygg­ist á upp­lýs­ingum úr árs­skýrslum en ekki opin­berum tölum.

Aukið gagn­sæi kallar á afnám banka­leyndar gagn­vart stjórn­völdum, sem Piketty telur rót­tækt skref en spyr á móti hvort ein­hver eigi rétt á því að ákvarða í raun eigin skatta­pró­sentu með því að halda til­teknum eignum utan kerf­is­ins (521-522). Piketty telur sam­ræmdan og gagn­sæjan fjár­magns­skatt raun­hæfan val­kost fyrir Evrópu, eða a.m.k. evru­ríkin, og telur það styrkja sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart Kína sem er með fjár­magns­höft og stýrir flæði fjár­magns inn og út úr land­inu. Fjár­magns­skattur sé í raun frjáls­lynda útgáfan af fjár­magns­höftum. (536) Piketty telur að úr því að Evr­ópu­ríkin hafi sam­ein­ast um gjald­miðil, evr­una, sé erfitt að skilja af hverju þau geti ekki komið sér saman um skatta­stefnu gagn­vart lög­að­ilum sem starfi þvert á landa­mæri. Piketty leggur til sér­stakt „fjár­laga­þing Evrópu“ þar sem sætu full­trúar evr­ópskra þjóð­þinga til að tryggja sam­ræmi við þjóð­þingin og lýð­ræð­is­lega ákvarð­ana­töku. (558-562). Nið­ur­staða Piketty er að gagn­sæi í fjár­hags­upp­lýs­ingum og nýt­ing þeirra upp­lýs­inga til að leggja á þrepa­skiptan skatt sé nauð­syn­legt fyrir efna­hags­legt lýð­ræði. Það sé und­ir­staða vel­ferð­ar­kerfis á 21. öld. (570)

Bók Pikettys er mik­il­vægt inn­legg í vax­andi umræðu um ójöfnuð, afleið­ingar hans og hvort stjórn­völd um heim allan eigi að líta á það sem verk­efni sitt að sporna gegn ójöfn­uði. Þar hafa alþjóða­stofn­anir látið í sér heyra og bein­línis varað við ójöfn­uði sem einni helstu ógn við frið í heim­inum. Bókin hefur þann stóra kost að sam­þætta ólíkar fræði­greinar og ræða fjár­magn í félags­legu sam­hengi – en fyrir það hefur hún líka verið gagn­rýnd, ekki síst af hag­fræð­ingum vest­an­hafs sem telja of lítið gert úr hefð­bundnum aðferðum hag­fræð­innar og eru gagn­rýnir á kenn­ingar Pikettys um tengsl auð­magns­rentu og vaxtar. Lang­flestir eru þó sam­mála um að þessi bók sé skyldu­lesn­ing fyrir alla þá sem vilja taka þátt í umræðu um efna­hags­þróun í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár