Þróa armband sem eykur öryggi sjómanna

Innan háskóla­sam­fé­lags­ins er mikil gróska á sviði nýsköp­unar og frum­kvöðla­starfs. Í Háskól­anum í Reykja­vík (HR) er mikið lagt upp úr sam­vinnu milli nem­enda í ólíkum greinum og hefur einn áfang­anna það að mark­miði að vinna að stofnun fyr­ir­tæk­is­ins, búa til við­skipta­á­ætlun og hrinda hlutum í fram­kvæmd.

Hópur skip­aður sex nem­endum, Halldóri Guðna Trausta­syni nem­anda í hátækni­verk­færði, Hauki Sig­ur­geirs­syni nem­anda í við­skipta­fræði, Hákoni Garðari Þor­valds­syni nem­anda í hátækni­verk­fræði, Röskvu Vig­fús­dóttur nem­anda í sál­fræði, Svan­hildi Kamillu Sig­urð­ar­dóttur nem­anda í lög­fræði, og Mikael Ingasyni, nem­anda í við­skipta­fræði, hefur unnið að stofnun fyr­ir­tækis í kringum hug­mynd sem fædd­ist í þriggja vikna áfanga í HR. Fyr­ir­tækið heitir Navitech og snýr að því að þróa arm­band fyrir sjó­menn til þess að tryggja betur öryggi þeirra.

Arm­bandið virkar þannig að ef að sjó­maður fellur fyrir borð þá gera neyð­ar­boð frá arm­band­inu skip­stjóra og björg­un­ar­að­ilum í landi við­vart. Við­eig­andi björg­un­ar­á­ætl­anir geta þá farið strax í gang og mögu­legt að sjá stað­setn­ingu þess sem er með arm­bandið með GPS tækni.

Hug­myndin hefur þegar vakið athygli útgerð­ar­fyr­ir­tækja hér á landi og er það ætlun hóps­ins sem stendur að baki fyr­ir­tæk­inu að mark­að­setja arm­bandið á alþjóða­vett­vangi í fram­tíð­inni en í fyrstu stendur til að þróa hug­bún­að­inn og tækn­ina sem arm­bandið byggir á í sam­starfi við við­skipta­vini hér á landi.

Nánari upp­lýs­ingar um Navitech má sjá á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár