Skelfingu lostnir yfir setu Þórólfs í nefndinni

Friðrik J. Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ), sendi Maríu Thjell, for­stöðu­manni Laga­stofn­unar Háskóla Íslands og for­manni eft­ir­lits­nefndar um skulda­niðu­fell­ingar í banka­kerf­inu, tölvu­bréf þar sem hann lýsti yfir áhyggjum útgerð­ar­manna á því að Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, væri í aðstöðu til þess að skoða rekstur útgerð­ar­fyr­ir­tækja ofan í kjöl­inn.

Í bréf­inu sem Friðrik sendi Maríu, með afriti á stjórn og vara­stjórn LÍU auk fjölda útgerð­ar­manna, lýsir hann því fyrir Maríu að útgerð­ar­menn treysti Þórólfi ekki. Í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að einn útgerð­ar­manna hafi haft sam­band við Friðrik, eftir að hafa hlustað á Maríu flytja erindi um starf eft­ir­lits­nefndar um skulda­nið­ur­fell­ingu sam­kvæmt lögum númer 107/2009, og sagt að hann gæti ekki til þess hugsað til þess að Þórólfur hefði aðgang að „öllum hans málum í bank­anum.“
Í nið­ur­lagi bréfs­ins spyr Friðrik að því hvernig sé hægt að „verj­ast“ því að Þórólfur kom­ist í rekstr­ar­gögn útgerð­anna.

Bréfið er birt í heild í Kjarn­anum í dag.

Lestu Kjarnann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár