Skuldaniðurfelling óréttlát og ekki forsvaranleg

Pétur H. Blöndal, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, leggst alfarið gegn skulda­nið­ur­fell­ing­ar­á­formum stjórn­valda en hann hefur skilað nefnd­ar­á­liti í efna­hags- og við­skipta­nefnd, þar sem hann rök­styður þá skoðun sína. Skulda­nið­ur­fell­ing­ar­á­form stjórn­valda, þar sem verð­tryggð fast­eigna­lán verða lækkuð með fram­lagi úr rík­is­sjóði, eru nú til með­ferðar í þing­inu og hefur efna­hags- og við­skipta­nefnd haft málið til með­ferðar að und­an­förnu.

Í áliti Péturs, sem birt var á vef Alþingis fyrir stundu, kemur fram að hann telji aðgerð­irnar órétt­látar, ómark­vissar og ekki for­svar­an­legar í ljósi skulda­stöðu rík­is­sjóðs.

Lokorðin í áliti Péturs eru þessi: „Ýmislegt mætti gera við 80 millj­arða kr. Til dæmis mætti lækka skuldir rík­is­sjóðs um þá fjár­hæð og grynnka á vaxta­greiðslum, lík­lega um 3 millj­arða kr. árlega eftir fjögur ár. Svo mætti fara blöndu af skulda­lækkun og skatta­lækkun vegna þess hve brýnt er að draga til baka skatta­hækk­anir fyrri rík­is­stjórnar. Lækka mætti skuldir rík­is­sjóðs um 40 millj­arða kr., 10 millj­arða kr. á ári. Mögulegt væri að lækka fjár­magnstekju­skatt í úr 20% í 15% en sú aðgerð mundi kosta 5 millj­arða kr. á ári, þ.e. 20 millj­arða kr. á fjórum árum. Með því væri dregið úr refs­ingu fyrir að sýna sparnað og ráð­deild, en á þessum tíma­punkti er einmitt mik­il­vægt að hvetja til sparn­aðar. Trygg­inga­gjald er skattur á laun og atvinnu og hindrar sköpun atvinnu. Lækka mætti það um 0,5% sem kost­aði um 5 millj­arða kr. á ári og mundi örva atvinnu­lífið til að skapa ný störf. Aðrir kunna að sjá mögu­leika til að hækka fram­lög til leigj­enda, atvinnu­lausra og til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Hér er um miklar upp­hæðir að ræða af skatt­tekjum rík­is­sjóðs. Með hlið­sjón af stöðu rík­is­sjóðs er ekki for­svar­an­legt að afhenda þær ein­hverjum sem ekki þurfa á fénu að halda.“

Sjá má álit Péturs, þar sem hann gagn­rýnir nið­ur­fell­ing­ar­á­form stjórn­valda harð­lega, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár