Bibbi er í bakröddunum (staðfest) - Allt getur gerst

Á þriðju­dag­inn var það fyrst stað­fest í mínum huga að Snæbjörn Ragn­ars­son, Bibbi, myndi verða hluti af fram­lagi Íslands í úrslitum Eurovision. Mjög fátt milli him­ins og jarðar er ólík­legra en það í mínum huga, þekkj­andi kauða. En þetta er sum sé búið að ger­ast; Bibbi var þarna í bak­rödd­unum á svið­inu í Kaup­manna­höfn. Það er búið að stað­festa þetta á ýmsa vegu, myndir og mynd­bönd og fleira. Hann hefur þó látið glitta í sinn innri mann á Facebook ; var í Slayer-bolnum innan undir bún­ingnum góða. Sumt breyt­ist aldrei og það er mik­il­vægt að það geri það ekki.

Með honum í bak­rödd­unum var annar maður sem er dags­dag­lega í hlut­verki sem ég held að hann hafi verið frekar ólík­legur til þess að sinna, svona framan af í það minnsta. Metal-söngv­ara­goð­sögnin Óttarr Proppé vinnur við að búa til lög á dag­inn. Ekki metal-lög, heldur lögin í land­inu, hvað má og hvað má ekki.

Mér finnst þetta eig­in­lega fal­legt. Þeir Pollapönk­ara-Botn­leðju-FH Mafíu menn hafa prófað svo margt að þeirra nýju skemmti­legu verk­efni eru hætt að koma manni á óvart. Nema kannski þegar Halli í Botn­leðju var far­inn að leiða þús­undir starfs­manna á leik­skólum í kjara­bar­áttu við yfir­valdið. Ég við­ur­kenni að í fyrstu var það svo­lítið skrýtið.

En þessar bak­raddir. Vá.

Álykt­unin sem má draga af þessum lit­ríka hópi er ein­föld og stutt; Allt getur gerst, allt er mögu­legt. Kjarninn sendir Pollapönk­urum for­dóma­lausar kveðjur til Kaup­manna­hafnar, breiðið út fagn­að­ar­er­indið í kvöld, verið góð. Áfram Ísland!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár