400 stóreignafjölskyldur geta fengið niðurfellingu

Um 400 fjöl­skyldur, sem eiga meira en 100 millj­ónir króna í hreinni eign, það er 100 millj­ónum meiri eignir en skuldir, munu geta fengið fé frá rík­is­sjóði til þess að lækka verð­tryggðar fast­eigna­skuldir sínar. Þetta kemur fram í gögnum frá emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra (RSK) sem birt hafa verið á vef Alþingis og voru til umræðu í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í gær. Frumvarp um nið­ur­fell­ingar verð­tryggðra fast­eigna­skulda, sem fjár­magn­aðar verða með fé úr rík­is­sjóði, er nú til með­ferðar í efna­hags- og við­skipta­nefnd.

Í gögn­unum kemur fram hvernig eigna­staða fjöl­skyldna í land­inu er og skulda­staða sömu­leiðis. Flestar fjöl­skyld­urnar eru með nei­kvæða eigna­stöðu, eða 18.520, eða eigna­stöðu frá 0 til 10 millj­ónum, en í þeim hópi eru 18.530 fjöl­skyldur, að því er fram kemur í gögnum frá RSK.

Sjá má gögnin frá RSK hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár