Sjálfstæðisflokkur nú með fimm menn í Reykjavík

Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eru stærstu fram­boðin í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði, eftir að nið­ur­stöður könn­unar Félags­vís­inda­stofn­unnar HÍ er reiknuð með. Sam­fylk­ingin reikn­ast með 28,6 pró­senta fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur með 27,0 pró­sent. Fram­boðin fengju fimm full­trúa í borg­ar­stjórn hvort. Munurinn á fylgi fram­boð­anna er þó enn innan vik­marka, svo ekki er hægt að segja með fullri vissu hvort stjórn­mála­aflið sé vin­sælla í Reykja­vík.

Fylgi framboða til borgarstjórnar í Reykjavik


Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá, gerðri 9. maí 2014

[visualizer id="4609"]

Könnunin sýnir að flokk­arnir tveir eru að sækja í sig veðrið á kosnað ann­arra fram­boða, sér­stak­lega Bjartar fram­tíðar sem tapar manni til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þeirri rúmu viku sem liðin er síðan kosn­inga­spáin var síð­ast reiknuð. Meiri­hluti Bjartar fram­tíðar (áður Besta flokks­ins) og Sam­fylk­ing­ar­innar veltur aðeins á einum full­trúa verði þetta nið­ur­staða kosn­ing­anna 31. maí.

Vinstri græn tapa einnig fylgi. Í síð­ustu kosn­inga­spá mæld­ist fram­boð þeirra með 8,3 pró­sent fylgi en er nú með 7,1 pró­sent. Það litla sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig er langt innan við vik­mörk útreikn­ing­anna. Það sama á við um Pírata sem virð­ist þó tapa örlitlu fylgi síðan 1. maí. Vinstri græn og Píratar fengju enn bæði einn full­trúa yrði þetta nið­ur­staða kosn­ing­anna.

Þróun a fylgi flokka í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 9. maí 2014

[visualizer id="4616"]

Röðun full­trúa er áhuga­verð fyrir þær sakir að fimmti maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hildur Sverr­is­dóttir, er nú fimmt­ándi og síð­asti full­trú­inn inn í borg­ar­stjórn á undan fjórða full­trúa Bjartar fram­tíðar. Skúli Helgason, fimmti maður á lista Sam­fylk­ing­ar­innar, er fjórt­ándi inn. Alls kom­ast 15 full­trúar að en kosn­inga­spáin reiknar röð efstu 20. Á lista þeirra fimm sem næstir eru inn er áhuga­vert að sjá að eini full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem kemst á topp 20 fellur um eitt sæti sam­kvæmt spánni, úr átj­ánda í nítj­ánda. Sjötti full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar er nú lík­legri til að ná kjöri en odd­viti Fram­sóknar.

Röðun fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag en þar mæld­ust báðir flokk­arnir með fimm manns. Sam­fylk­ingin mæld­ist þar með rúm­lega þriggja pró­sentu­stiga for­skot á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár