Lengt í gjaldeyrisskuld Landsbankans

Lands­bank­inn hf. og slita­stjórn LBI hf. hafa kom­ist að sam­komu­lagi um breyt­ingar á upp­gjörs­skulda­bréfum sem samið var um í des­em­ber 2009, en eft­ir­stöðvar þeirra eru nú að jafn­virði um 226 millj­arðar króna. Af hálfu slita­stjórnar LBI hf. er gerður fyr­ir­vari um að til­teknar und­an­þágur fáist í sam­ræmi við lög um gjald­eyr­is­mál.

Loka­greiðsla verður innt af hendi í októ­ber 2026 í stað októ­ber 2018. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum. „End­ur­greiðslur verða á tveggja ára fresti og dreifast nokkuð jafnt. Lands­bank­inn hefur heim­ild til að greiða skuld­ina að hluta eða að fullu upp án kostn­aðar, hvenær sem er á tíma­bil­inu,“ segir í til­kynn­ingu Lands­bank­ans.

Sam­komu­lagið hefur mikla þýð­ingu fyrir íslenska þjóð­ar­búið þar sem fyr­ir­sjá­an­legt var að greiðslu­byrðin gætti leitt til mik­ils vanda ef ekki hefði komið til leng­ingar lána. Sam­komu­lagið liðkar enn fremur fyrir mögu­leik­anum á því að afnema fjár­magns­höft.

Vaxta­kjör verða óbreytt til októ­ber árið 2018, þ.e. 2,9% álag ofan á LIBOR vexti, að því er segir í til­kynn­ing­unni. „Eftir það fer vaxta­á­lagið stig­hækk­andi og verður 3,5% vegna gjald­daga 2020 og að lokum 4,05% vegna loka­gjald­dag­ans árið 2026. Hver gjald­dagi á tíma­bil­inu frá 2020 til 2026 er að jafn­virði um 30 millj­arða íslenskra króna.“

Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum að sam­komu­lagið mjög mik­il­vægt. „Skil­mál­arnir eru mjög vel við­ráð­an­legir fyrir Lands­bank­ann og mun þessi breyt­ing auð­velda honum alþjóð­lega láns­fjár­mögnun. Þá felur sam­komu­lagið í sér að sér­stökum hömlum á arð­greiðslur hefur verið hrundið úr vegi, til hags­bóta fyrir hlut­hafa bank­ans. Sam­komu­lagið er jafn­framt mik­il­vægur þáttur í að leysa úr þeim stóru við­fangs­efnum sem tengj­ast skulda­stöðu þjóð­ar­bús­ins og afnámi gjald­eyr­is­hafta. Við teljum þennan áfanga því mjög mik­il­vægan fyrir íslenskt efna­hags­líf sem og Lands­bank­ann.”

Skulda­bréfin voru upp­haf­lega gefin út á grund­velli ákvarð­ana Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sam­kvæmt ákvæðum neyð­ar­lag­anna. Fjár­hæðin var ákveðin sem mis­munur á virði eigna og skulda sem fluttar voru yfir til Lands­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár