Með sæstrenginn á teikniborðinu

Breskir fjár­festar eru komnir lengra en margir átta sig á í því að und­ir­búa lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­landseyja sem leiðir raf­magn og hafa áform þeirra verið kynnt fyrir fjöl­mörgum fjár­festum í Evrópu auk ráða­manna hér á landi. Mikil alvara er að baki und­ir­bún­ings­vinnu og hefur miklu verið kostað til. Verk­efnið er kallað Atlantic Supergrid (ASG), eða Atl­ants­hafs­dreifi­kerfið, og miðar að því að fjár­magna og setja upp 1.000 kíló­metra langan sæstreng til Íslands sem hefur burð­ar­getu upp á 1,2 gíga­vatt­stundir, eða 1.200 mega­vött, af raf­orku. Markmið verk­efn­is­ins er að útvega meira en tveimur millj­ónum breskra heim­ila vist­væna orku, að því er segir í kynn­ing­ar­gögnum frá hópnum sem vinnur að verk­efn­inu.


Mikill þungi í verkefninu


Einn af þeim sem leiða verk­efnið er fyrr­ver­andi orku­mála­ráð­herra Bret­lands úr Íhalds­flokknum, Charles Hendry, en í hans tíð sem ráð­herra, árið 2012, var und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing við íslensk stjórn­völd sem miðar að því að skoða mögu­leika lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands. Hendry hefur síðan unnið ötul­lega að und­ir­bún­ingi verk­efn­is­ins, í sam­starfi við fleiri sér­fræð­inga, sem hafa víð­tæka reynslu af fjár­mögnun stórra verk­efna.

Þetta er örstutt útgáfa af frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár