Samfylkingin enn stærst en Sjálfstæðisflokkur í sókn

Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði, breyt­ist nokkuð eftir að nýjasta könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 er reiknuð með. Nú er fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar og Sjálf­stæð­is­flokks mjög jafnt og mun­ur­inn innan vik­marka. Björt Framtíð mæld­ist með 25,0 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni 14. apríl en hefur tapað tæpum þremur pró­sentu­stigum á rúmum tveimur vikum. Meiri­hlut­inn heldur því velli með níu full­trúa, fimm frá Sam­fylk­ing­unni og fjórum frá Bjartri fram­tíð.

Fylgi framboða til borgarstjórnar í Reykjavík


Samkvæmt nýj­ustu kosn­iga­spá, gerðri 1. maí 2014

[visualizer id="4609"]

Engar breyt­ingar verða á fjölda full­trúa fram­boð­anna í borg­ar­stjórn sam­kvæmt kosn­inga­spánni, ólíkt könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 þar sem Sjálf­stæð­is­flokkur mæld­ist stærstur í borg­inni með fimm full­trúa. Þeir fá enn fjóra full­trúa í kosn­inga­spánni, eins og Björt fram­tíð. Sam­fylk­ingin er sam­kvæmt spánni stærst með fimm full­trúa í borg­ar­stjórn.

Röðun fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Breyt­ingar verða hins vegar í sætum 16 til 20. Sjálf­stæð­is­konan Hildur Sverr­is­dóttir er næst inn í borg­ar­stjórn á undan öðrum full­trúa Pírata. Fimmt­ánda sætið vermir Skúli Helgason, fimmti maður á lista Sam­fylk­ing­ar­innar, en ef Sjálf­stæð­is­menn bæta við sig fylgi er ljóst að hann dettur út.

Odd­vita­leysi Fram­sókn­ar­flokks­ins er nú leyst og fær­ist fylgi flokks­ins upp um 1,8 pró­sentu­stig í nýj­ustu kosn­inga­spánni. Framsókn hefur ekki átt full­trúa í röð 20 efstu und­an­farið en nú er odd­vit­inn Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir í 18. sæti og þriðja næst inn í borg­ar­stjórn.

Þróun á fylgi flokka og fjölda borgarfulltrúa á flokk í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 1. maí 2014

[visualizer id="4616"]

Kosn­inga­bar­átta margra fram­boða í Reykja­vík hófst form­lega milli kosn­inga­spár­innar 14. apríl og 1. maí. Búast má við að aukin harka fær­ist í kosn­inga­um­ræðunna eftir því sem nær dregur kosn­ing­unum eftir 30 daga; laug­ar­dag­inn 31. maí.

Sjá nánar á www.kosningaspa.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár