Ferð á fjórum hjólum

Hversu margar góðar minn­ingar átt þú þar sem bíll hefur komið við sögu? Manstu eftir til­finn­ing­unni að upp­lifa magn­aða staði í fyrsta sinn, á ferða­lagi með pabba og mömmu? Manstu eftir björtum sum­ar­kvöldum, varð­eldi og gít­ar­spili í tjaldúti­legu með vin­unum? Manstu fyrstu úti­leg­una með kærust­unni eða kærast­anum? Manstu þegar þú sást börnin þín eign­ast sömu upp­lifun og þú með þínum for­eldrum?

Flest eigum við svona minn­ingar og í flestum til­vikum var það fjög­urra hjóla fjöl­skyldu­vinur sem kom okkur á leið­ar­enda, gerði upp­lifun­ina mögu­lega. Bíl­prófið frelsar okkur úr land­fræði­legum höftum og rúmir 100.000 fer­kíló­metrar eru okkar til að njóta, þar sem við viljum, þegar við viljum.


Síðan ger­ist það gjarnan að við tjóðrum okkur smátt og smátt aftur við átt­hag­ana. Við þurfum að vinna, mála þakið, fara í ferm­ing­ar­veislu, setja í þurrkara, sjá Bó og Bubba í Hörpu og þar fram eftir göt­unum. Einstaka sinnum fáum við úthlutun hjá stétt­ar­fé­lag­inu og þá er brunað í bústað­ar­ferð, en hún snýst öðru fremur um að troða í sig grill­mat og leita að kran­anum fyrir pott­inn. Ágætt, en til­breyt­ing­ar­s­nautt.

Ekki er öll von úti. Mörg dæmi eru um fólk sem lét þetta ekki henda sig, eða hafði kjark til að snúa þró­un­inni við og halda á vit ævin­týr­anna.

Þetta er örstutt brot úr grein um ævn­týri á fjórum hjólum. Lestu um ævin­týra­fólkið í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár