Ríkið með fangið fullt af fasteignum

Seðla­banki Íslands og Íbúða­lána­sjóður eiga 2.360 íbúðir um land allt. Þar af á Íbúða­lána­sjóður bróð­ur­part­inn, eða 2.121 sam­kvæmt mán­að­ar­skýrslu sjóðs­ins fyrir mars­mánuð sem birt var í gær. Seðla­banki Íslands, í gegnum félagið Hildu sem Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) á, heldur enn á 350 fast­eignum, þar af 250 íbúðum. Um 100 fast­eignir sem félagið á telj­ast til atvinnu­hús­næðis.
Seðla­bank­inn og Íbúða­lána­sjóður hafa bæði beitt svip­uðum aðferðum við sölu á eignum, það er að setja eign­irnar smátt og smátt út á markað og freista þess þannig að fá sem hæst verð fyrir eign­irnar. Fast­eigna­sölur hafa séð um að selja eign­irnar, í mörgum til­vikum fast­eigna­salan Mikla­borg og fast­eigna­salan Eigna­miðlun.
ESÍ tók við um 550 fast­eignum sem voru í eigu Dróma þegar samn­ingar náð­ust á milli ESÍ, Dróma og Arion banka um yfir­töku ESÍ á ákveðnum eignum og skuldum Dróma og upp­gjöri á kröfu Arion banka á Dróma. Samn­ing­arnir náð­ust um síð­ustu ára­mót. Sé mið tekið af þessu hefur Seðla­bank­inn nú þegar selt um 200 fast­eignir frá því að hann tók við eign­unum eftir að hafa gengið að veðum sínum.

Þetta er örstutt brot úr frétta­skýr­ingu Kjarnans um fast­eignir í eigu hins opin­bera. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár