Topp fimm: Náttúruparadís til sölu, kostar eina tölu

Ekki hefur enn fund­ist lausn sem allir geta sætt sig við á því hvernig eigi að standa að því að inn­heimta gjald fyrir að skoða nátt­úruperlur hér á landi. Stjórn­völd hafa þó ákveðið að hefja gjald­töku á næsta ári. Hugs­an­lega er það ógjörn­ingur að finna leið sem allir Íslend­ingar geta sætt sig við, en hvaða staðir eru það helst sem verða umdeildir þegar gjald­takan hefst fyrir alvöru? Kjarninn hefur grun um að þetta verði ekki auð­velt, eins og fyrstu til­raunir til þess að selja aðgang að nátt­úruperlum gefa til kynna.


5. Geysissvæðið verður alltaf umdeilt


Nú þegar hafa verið gerðar til­raunir til gjald­töku inn á svæðið í kringum Geysi en þær hafa ekki gengið vel, svo vægt sé til orða tekið. Nær­tæk­ast er að nefna það að Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands féllst á lög­banns­beiðni íslenska rík­is­ins vegna gjald­töku land­eig­enda á svæð­inu. Aug­ljós­lega þurfa íslenska ríkið og land­eig­endur að ganga í takt í þessum efnum, þar sem eign­ar­hald á svæð­inu skipt­ist á milli þeirra. Einn getur ekki ákveðið ein­hliða að hefja gjald­töku í ósætti við hinn. Fátt bendir til þess að sátt sé í nánd, sem leitt getur til far­sællar lausnar. Líklega verður gjald­takan á svæð­inu alltaf umdeild.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár