Kafteinn tunglskot vísar leiðina til framtíðar

Þegar hug­myndin að þess­ari grein kvikn­aði átti útgangs­punkt­ur­inn að vera að Google-fyr­ir­tækið ætl­aði sér að breyta heim­inum. Auðvitað leið ekki á löngu þar til ég átt­aði mig á því að Google hefur nú þegar umbylt ver­öld okkar flestra. Sögnin að gúgla er komin með óop­in­beran þegn­rétt í íslensku máli og vísar til þess að við getum hvar og hvenær sem er sótt okkur þekk­ingu og upp­lýs­ingar um næstum því hvað sem er. Það er ekk­ert smá­ræði þegar maður hugsar um að Google hefur aðeins verið til í tæp 16 ár.

Hvar byrjaði þetta allt saman?


Eins og flestir vita er kjarn­inn í Google-veld­inu leit­ar­vél fyr­ir­tæk­is­ins, sem var upp­haf­lega sett upp sem rann­sókn­ar­verk­efni af tveimur dokt­or­snemum í Stanford-háskól­anum, þeim Larry Page og Sergei Brin. Þeir stofn­uðu Google í sept­em­ber 1998 og var mark­miðið að skipu­leggja allar upp­lýs­ingar heims­ins og gera þær aðgengi­legri og gagn­legri. Slagorð þeirra var „Don´t be evil“ en tölvuris­inn Google, sem safnar miklum upp­lýs­ingum um not­endur sína, er að sjálf­sögðu ekki óum­deildur. Upp­haf­lega sner­ist allt um leit­ar­vél­ina en í gegnum tíð­ina hefur hlað­ist utan á vöru­fram­boð fyr­ir­tæk­is­ins með gríð­ar­lega hröðum og miklum vexti þess. Nú er mark­aðsvirði Google litlir 400 millj­arðar doll­ara og telst það vera næst­verð­mætasta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna en keppi­naut­ur­inn Apple vermir efsta sætið. Þrátt fyrir mikið vöru­fram­boð kemur megnið af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins enn frá aug­lýs­ingum á net­inu sem eru birtar í gegnum aug­lýs­inga­kerfið AdWords. Google vill því fjölga tekju­straumum sínum.


Hvað gerir þetta Google eiginlega?


Meðal ann­arra mik­il­vægra lausna Google eru skrif­stofu­hug­bún­aður fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga (Google Drive og Google Apps), Youtube-víd­eó­vef­ur­inn, blogg­þjón­ustan Blogger, gagna- og vef­hýs­ing, Chrome-vafr­inn, Chrome-stýri­kerfið fyrir far­tölvur, sam­fé­lags­netið Google+, korta­þjón­ustan Google Maps og Nexus-snjall­tæki. Android-stýri­kerfi Google hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í að gera snjall­síma að almenn­ings­eign um heim allan. Talið er að snjall­síma­not­endur verði 1,75 millj­arðar á þessu ári og að lang­flestir þess­ara síma keyri á ýmsum útgáfum af Android-stýri­kerf­inu. Tólf gagna­ver Google um heim allan eru bak­beinið í þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins.
Google er sem sagt leið­andi í leit­ar­tækni og aug­lýs­ingum á net­inu og stendur í harðri sam­keppni við Apple á snjall­tækja­mark­að­inum. Google berst einnig við Microsoft á sviði skrif­stofu­hug­bún­aðar á net­inu og við Amazon í að veita skýja­þjón­ustu hvers konar. Eins og rakið verður hér að neðan virð­ist Google vilja búa til val­kosti við snjall­síma eins og við þekkjum þá í dag, vera leið­andi í sam­göngu­tækni og róbótum og koma sterkt inn í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kafteinn Tunglskot vísar veginn


Mið­punkt­ur­inn í þessu starfi er leyni­leg rann­sókn­ar­mið­stöð sem kall­ast Google X. Henni stýra þeir Sergei Brin og vís­inda­mað­ur­inn, rit­höf­und­ur­inn og frum­kvöð­ull­inn Astro Teller. Sá síð­ar­nefndi er með hinn lát­lausa starfs­titil „Captain of Moonshots“, en hug­takið Moonshots vísar einmitt til áhættu­samra og fram­úr­stefnu­legra lausna á vanda­málum sem Google vill takast á við. Um 250 manns með fjöl­breyttan bak­grunn starfa hjá rann­sókn­ar­stöð­inni.

Þetta er brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um Google. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár