Rakel Þorbergsdóttir nýr fréttastjóri RÚV

Rakel Þor­bergs­dóttir hefur verið ráðin frétta­stjóri á RÚV. Rakel hefur gegnt stöðu vara­f­rétta­stjóra á frétta­stofu RÚV und­an­farið, en hún tekur við frétta­stjóra­stöð­unni af Óðni Jónssyni sem hverfur til ann­arra starfa á RÚV. Óðinn mun hins vegar starfa við hlið Rakelar fyrst um sinn.

Alls sóttu tólf um frétta­stjóra­stöð­una, þeirra á meðal Benedikt Sig­urðs­son aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­hera, Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, Jóhann Hlíðar Harð­ar­son og Pálmi Jónasson frétta­menn á RÚV og Jóhann Hauksson blaða­maður.

Eftir að umsækj­enda­hóp­ur­inn var skor­inn niður, stóðu fjórir þeirra eftir um hit­una eins og Kjarninn greindi frá á mánu­dag­inn. Þau þrjú sem komu til álita um frétta­stjóra­stöð­una auk Rakelar, voru Svavar Hall­dórs­son fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, Ingólfur Bjarni Sig­fús­son yfir­maður nýmiðla­deildar RÚV og Sigríður Hagalín Björns­dóttir vara­f­rétta­stjóri. Kjarninn greindi frá því í dag að Sigríður hefði verið boðuð á fund hjá Magnúsi Geir Þórð­ar­syni útvarps­stjóra í morgun ein umsækj­enda.

Þá var Frank Þórir Hall ráð­inn dag­skrár­stjóri yfir Rás 2, Þröstur Helgason verður dag­skrár­stjóri Rásar 1, Skarp­héð­inn Guð­munds­son var end­ur­ráð­inn sem dag­skrár­stjóri Sjón­varps­ins, sem og Ingólfur Bjarni Sig­fús­son sem nýmiðla­stjóri RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár