Sigríður Hagalín boðuð á fund útvarpsstjóra í morgun

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var Sigríður Hagalín Björns­dóttir vara­f­rétta­stjóri RÚV boðuð á fund Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra í morgun. Kjarninn greindi frá því á mánu­dag­inn að Sigríður og þrír aðrir umsækj­endur um frétta­stjóra­stöð­una á RÚV kæmu einir til álita í starfið eftir að umsækj­enda­hóp­ur­inn var skor­inn niður.

Hinir sem komu til álita voru Svavar Hall­dórs­son fyrr­ver­andi frétta­maður hjá RÚV, Rakel Þor­bergs­dóttir vara­f­rétta­stjóri og Ingólfur Bjarni Sig­fús­son yfir­maður nýmiðla­deildar RÚV. Heim­ildir Kjarnans herma að aðrir umsækj­endur um vara­f­rétta­stöð­una hafi ekki verið boð­aðir á fund útvarps­stjóra í morgun. Flest virð­ist því benda til þess að Sigríður Hagalín Björns­dóttir verði næsti frétta­stjóri RÚV.

Þá herma heim­ildir Kjarnans að Ragn­hildur Thorlacius hafi sömu­leiðis verið boðuð á fund útvarps­stjóra í morgun, en hún var á meðal þrettán umsækj­enda um dag­skrár­stjóra­stöð­una á Rás 2.

Boðað hefur verið til starfs­manna­fundar hjá RÚV klukkan 14:30, þar sem form­lega verður til­kynn hverjir hreppa fram­kvæmda­stjóra­stöð­urnar sem Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri aug­lýsti lausar til umsóknar á dög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár