Creditinfo á leið úr landi

Fjárhags- og við­skipta­upp­lýs­inga­fyr­ir­tækið Creditinfo hefur hafið und­ir­bún­ing að því að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi. Reynir Grét­ars­son, stærsti eig­andi Creditinfo og einn stofn­enda, stað­festir yfir­vof­andi flutn­ing höf­uð­stöðv­anna frá Íslandi í sam­tali við Kjarnann, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Reynir sendi tölvu­bréf á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra í kjöl­far þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, um að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og draga umsókn Íslands að sam­band­inu til baka. Þar hvatti hann ráð­herrana til að grípa til aðgerða til að bæta stöðu íslenskra fyr­ir­tækja með alþjóð­lega starf­semi og til­kynnti um ákvörðun Creditinfo að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi.

Í nið­ur­lagi tölvu­bréf­ins segir: „Ég tel að það eigi að vera for­gangs­verk­efni [stjórn­valda] að hlúa að rekstr­ar­um­hverfi sér­hæfðra þekk­ing­ar­fyr­ir­tækja. Það verður best gert með að finna lausnir sem ógna ekki íslensku hag­kerfi heldur þvert á móti styðja auk­inn hag­vöxt. Ég leyfi mér að leggja til að stjórn­völd bregð­ist fljótt við og finni leiðir sem eru til þess fallnar að bæta enn rekstr­ar­skil­yrði íslenskra fyr­ir­tækja. Ég er auð­vitað til­bú­inn að koma með frek­ari upp­lýs­ingar eða á annan hátt aðstoða við að finna lausn á vand­anum.“ Engin við­brögð hafa borist frá áður­nefndum ráð­herrum við tölvu­bréf­inu.

Í dag starfa hátt í þrjú hund­ruð manns hjá Creditinfo í sautján löndum víðs vegar um heim­inn, þar af um sex­tíu á Íslandi. Creditinfo Group, sem er móð­ur­fé­lag Creditinfo, var á árunum 2004 til 2008 valið eitt af 500 fram­sækn­ustu frum­kvöðla­fyr­ir­tækjum Evrópu af sam­tök­unum Europe's Entreprene­urs for Growth. Hagnaður Creditinfo Group fyrir fjár­magnsliði, skatta og afskriftir á síð­asta ári nam (EBITDA) tæp­lega 3,4 millj­ónum evra eða röskum hálfum millj­arði íslenskra króna.

Creditinfo hefur þar með bæst í hóp íslenskra frum­kvöðla­fyr­ir­tækja sem hyggur á brott­hvarf frá Íslandi vegna gjald­eyr­is­hafta og efna­hags­á­stands­ins. Kjarninn hefur greint frá því að þrýst­ingur erlendra hlut­hafa Marels, CCP og Össurar, um að flytja skuli höf­uð­stöðvar fyr­ir­tækj­anna úr landi, fari ört vax­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár