Kjarnaþingið: Hvað finnst því um aukna kaupauka?

Kjarninn vill að sem flestar raddir sam­fé­lags­ins heyr­ist varð­andi helstu mál líð­andi stundar á Íslandi. Í þeirri við­leitni hefur Kjarninn sett saman fjöl­breyttan hóp ein­stak­linga sem hann mun leita álits til varð­andi málin sem brenna á sam­fé­lag­inu hverju sinni. Hópurinn telur á fjórða tug ein­stak­linga úr öllum kimum þjóð­fé­lags­ins og hefur hlotið nafnið Kjarna­þingið. Þing er sett.

Hvað finnst þér um frumvarp fjármálaráðherra, sem heimilar fjármálafyrirtækjum að greiða allt að heil árslaun í kaupauka?


Lilja Dögg Jóns­dóttir
hag­fræð­ingur og háskóla­nemi
Í fljótu bragði virð­ist manni rétt­látt að fyr­ir­tæki stýri því sjálf hvernig þau kjósa að greiða starfs­mönnum sínum laun. Fræðunum sam­kvæmt geta bónusar gagn­ast vel við að hvetja starfs­menn til að leggja harðar að sér og ná settum mark­miðum fyr­ir­tæk­is­ins. Það er hins vegar vanda­samt verk að haga bón­us­greiðslum svo að hvat­arnir séu sann­gjarnir, bæði fyrir starfs­menn, fyr­ir­tækið og sam­fé­lagið. Hið almenna íslenska launaum­hverfi þekkir ekki, og skilur því tæp­ast, hvatann sem bón­us­greiðsl­urnar eru.
Hér í Banda­ríkj­unum fá til dæmis flestir greidda bónusa eða aðrar hvata­greiðslur, hvort sem það eru fjár­mála­starfs­menn eða ekki. Tog­streitan er því skilj­an­lega allt önnur heima á Íslandi þar sem slíkar greiðslur eru sjald­séðar. Stóra spurn­ingin í mínum huga er þó hvers vegna fjár­mála­ráð­herra velur þessa tíma­setn­ingu fyrir breyt­ingar sem þessar; í miðri kjara­deilu, nið­ur­skurði og verk­falla­hr­inu. Það má ætla að íslenskur almenn­ingur hafi í dag, skilj­an­lega, litla þol­in­mæði fyrir umræðu um bónusa og fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Stefán Bogi Sveins­son
sveit­ar­stjórn­ar­maður
Það er örstutt síðan áhættu­sækni fjár­mála­fyr­ir­tækja setti þjóð­fé­lagið á hlið­ina. Kaupaukar sem þessir hljóta að vera hvati til starfs­manna að huga frekar að skamm­tíma­hagn­aði en lang­tíma. Og þá kemur að spurn­ing­unni sem Mörður Árnason hafði nýverið eftir Sarkozy, fyrr­ver­andi Frakk­lands­for­seta. Fá þeir þá líka „malusa“? Þurfa þessir sömu starfs­menn að borga ef illa gengur í rekstr­inum?
Við eigum að reka hér á landi öfl­ugt fjár­mála­kerfi en við eigum líka að marka þá stefnu, í ljósi bit­urrar reynslu, að þetta kerfi verði opn­ara og heil­brigð­ara en ann­ars staðar í heim­inum. Fyrsta skref í þá átt væri að stemma stigu við kaupauka­menn­ing­unni frekar en hitt.
Laun í fjár­mála­geir­anum eru góð og betri en víð­ast hvar ann­ars staðar hér á landi. Það eitt og sér á að vera full­nægj­andi hvati fyrir starfs­menn að skila góðu verki fyrir sín fyr­ir­tæki. Sé sú ekki raunin er það dapur vitn­is­burður um almennt vinnu­sið­ferði innan fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna.

Sveinn Arn­ars­son
rit­stjóri
Það sem kemur helst upp í huga minn við frum­varp fjár­mála­ráð­herra er takt­leysi. Frum­varpið gengur ekki í takt við sam­fé­lagið. Nú á að rýmka tekju­mögu­leika þeirra sem hvað best standa í íslensku þjóð­fé­lagi.
Óvin­sældir rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa auk­ist mikið síð­ustu mán­uði. ESB-málið vefst fyrir þeim og skulda­lækk­unin fuðr­aði upp og er að engu orðin. Rík­is­stjórnin er óvin­sælli nú en vinstri­st­jórnin var á sínum verstu tímum.
Frumvarp fjár­mála­ráð­herra er ekki til að auka vin­sældir ríkis­stjórn­ar­innar, þvert á móti. Því er „póli­tísk takt­leysi“ lík­lega rétta lýs­ingin á frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár