Kjarnaþingið: Hvað finnst því um hærri kaupauka?

Kjarninn vill að sem flestar raddir sam­fé­lags­ins heyr­ist varð­andi helstu mál líð­andi stundar á Íslandi. Í þeirri við­leitni hefur Kjarninn sett saman fjöl­breyttan hóp ein­stak­linga sem hann mun leita álits til varð­andi málin sem brenna á sam­fé­lag­inu hverju sinni. Hópurinn telur á fjórða tug ein­stak­linga úr öllum kimum þjóð­fé­lags­ins og hefur hlotið nafnið Kjarna­þingið. Þing er sett.

Hvað finnst þér um frum­varp fjár­mála­ráð­herra, sem heim­ilar fjár­mála­fyr­ir­tækjum að greiða allt að heil árs­laun í kaupauka?

Karen Kjart­ans­dóttir
upp­lýs­inga­full­trúi LÍÚ
Það er gleði­efni að fólk fái vel greitt fyrir vel unnin störf en eðli­lega er fólk á varð­bergi þegar kemur að þessu fyr­ir­komu­lagi. Eftir hrun hafa hér verið meiri hömlur en tíðkast víða ann­ars staðar eftir hrun og ekki að ástæðu­lausu; hér njóta bankar rík­is­á­byrgðar að mörgu leyti, hér ríkja fjár­magns­höft, við­skipta­hindr­anir og fjár­mála­stofn­anir því ekki í eðli­legu umhverfi.
Sú rök­semda­færsla hefur heyrst að kaupaukar dragi úr launa­skriði. Gott og vel, en ég óska fólki frekar hærri launa fyrir störf sín en kaupauka, þykir það gegn­særra kerfi. Þá hefur verið sagt að kapp­kostað verði við að koma í veg fyrir að kaupaukar leiði til auk­innar áhættu­töku. Mér finnst erfitt að skilja bónusa öðru­vísi en að þeir séu verð­laun fyrir áhættu. Ég úti­loka þó ekki að hægt að sé að gera þetta vel, enda bjart­sýn­is­mann­eskja. Kannski ætti að taka þetta kerfi upp miklu víðar, mikið væri til dæmis gaman að verð­launa kenn­ara fyrir fram­úr­skar­andi árangur.

Finnur Vil­hjálms­son
lög­fræð­ingur
Banka­starfs­menn eru með hæst laun­uðu stéttum á Íslandi. Þarf líka að hækka bónus­ana, spyr ég eins og barn (eða bolsi)? Nú eru gömlu góð­ær­is­rökin um „alþjóð­lega eft­ir­spurn“ eftir þeim víst
áreið­an­lega ekki lengur gild. Er þá grimm sam­keppni um starfs­fólk milli íslensku bank­anna? Ekki að heyra. Nema það sé einmitt málið: að sú sam­keppni eigi að byrja með rýmkuðum bón­us­heim­ildum, sem yrðu fljótt botn­aðar og jafn­vægi næð­ist aftur, bara allt að 100% betri kjör. Bak­dyra­kjara­bar­átta?
Það virð­ist talið nátt­úru­lög­mál að borga háa bónusa í bönkum. Ég leyfi mér að vera ósam­mála. Ég sé enga ástæðu til að rýmka þessar heim­ildir núna. Þvert á móti: það ætti að fara mjög var­lega í ljósi reynsl­unnar. Ég er loks sér­stak­lega efins um að breyta eigi núgild­andi reglum þannig að starfs­menn áhættu­stýr­ingar, end­ur­skoð­un­ar­deildar og reglu­vörslu komi til greina sem bón­us­þiggj­endur. Samkvæmt núgild­andi reglum FME ber að greiða þeim nógu há laun í stað­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár