Sparisjóðaskýrslan: 21 mál er geta varðað fangelsi tilkynnt til Ríkissaksóknara

Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um rann­sókn á aðdrag­anda og orsökum erf­ið­leika og falls spari­sjóð­anna var afhent for­seta Alþingis í dag, en nefndin var skipuð í ágúst 2011. Á sama tíma var skýrslan afhent stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, sem fjall­aði um efni og nið­ur­stöður skýrsl­unnar á fundi sínum í kjöl­farið.

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis kynnir nú nið­ur­stöður skýrsl­unnar fyrir blaða­mönnum, en skýrslan er í sjö bindum og telur hátt í tvö þús­und blað­síður. Á blaða­manna­fund­inum upp­lýsti Hrannar Már S. Hafberg for­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar að 21 mál hafi verið til­kynnt til Rík­is­sak­sókn­ara. Þau ákvæði laga sem málin snerta geta öll varðað fang­els­is­refs­ingu. Rann­sókn­ar­nefndin tók þá ákvörðun að nafn­greina ekki við­kom­andi né lýsa atvikum nánar í við­kom­andi málum. Þá hefur Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari upp­lýst að um 10 mál tengd spari­sjóð­unum hafi komið hinn á borð emb­ætt­is­ins.

Samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 68/2011 um rann­sókn­ar­nefndir ber rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að til­kynna rík­is­sak­sókn­ara ef grunur vaknar við rann­sókn nefnd­ar­innar um refsi­verða hátt­semi og tekur hann ákvörðun um hvort rann­saka beri málið í sam­ræmi við lög um með­ferð saka­mála. Nefndin hefur ekki á hendi saka­mála­rann­sókn.

Af þeim málum sem þegar hafa verið til rann­sóknar og tengj­ast mál­efnum spari­sjóð­anna, hefur tveimur verið lokið með þremur dómum Hæsta­réttar, auk þess sem einum hér­aðs­dómi hefur verið áfrýjað til rétt­ar­ins. Hæsta­rétt­ar­dóm­arnir sem rann­sókn­ar­nefndin vísar til tengj­ast Exeter-mál­inu svo­kall­aða þar sem Ragnar Z. Guð­jóns­son fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri Byrs, Jón Þor­steinn Jónsson fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður spari­sjóðs­ins og Styrmir Þór Bragason fyrr­ver­andi for­stjóri MP-Banka hlutu þunga fang­els­is­dóma, og tveggja og hálfs árs fang­els­is­dómur yfir Viggó Þóri Þór­is­syni fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Verð­bréfa­þjón­ustu spari­sjóð­anna fyrir til­raun til fjársvika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár