Ráðamenn fengið kynningu á tillögum

Eitt af því sem skýrslur Alþjóða­stofn­unar og Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands fjalla um er fjár­magns­höftin og staða Íslands út frá utan­ríkis- og við­skiptapóli­tískum for­sendum í ljósi þeirra.

Þung greiðslu­byrði

Greiðslu­jafn­að­ar­vandi Íslands, það er þung greiðslu­byrði erlendra skulda þjóð­ar­bús­ins á næstu árum, teng­ist þessu vanda­máli beint, enda erlendir lána­mark­aðir erlendis svo gott sem lok­aðir fyrir íslenskum aðilum ennþá.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika, riti Seðla­banka Íslands, sem kynnt var í gær kemur fram að greiðslu­jafn­aðar­vandi lands­ins sé enn alvar­legur og ljóst að við­skipta­jöfn­uður lands­ins dugar að óbreyttu ekki til þess að fram­leiða nægi­lega mikið af gjald­eyri til þess að mæta greiðslum. Í fyrra mæld­ist und­ir­liggj­andi við­skipta­jöfn­uður þjóð­ar­bús­ins 82 millj­arðar króna, eða sem nemur 4,6 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Þetta er mesti við­skipta­jöfn­uður frá árinu 2010, og skýrist meðal ann­ars af öfl­ugri ferða­þjón­ustu. Þrátt fyrir þetta eru blikur á lofti, meðal ann­ars vegna óvissu um hvernig unnið verður úr eignum þrota­búa föllnu bank­anna. Samkvæmt Fjár­mála­stöð­ug­leika er upp­fært mat á krónu­eign föllnu bank­anna nú 497 millj­arðar króna, og hefur farið hækk­andi und­an­farin miss­eri.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur lít­ill hópur ráða­manna lands­ins fengið kynn­ingu frá sér­fræð­inga­hópi stjórn­valda um afnám hafta á mögu­legum leiðum út úr vand­anum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri eru þar á meðal og hafa þeir allir fengið kynn­ingu á skýrslu hóps­ins og vinnu hans. Þá átti hóp­ur­inn fund með slita­stjórn Glitnis síð­ast­lið­inn föstu­dag, þar sem skipst var á upp­lýs­ingum og málin rædd án þess að skýrt hafi komið fram hvaða leiðir yrðu ræddar.

Ekki nauða­samn­ings­leið

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur hóp­ur­inn talað fyrir því að farin verði gjald­þrota­leið með búin fremur en nauða­samn­ings­leið, það er að búin greiði út í krónum og að búunum verði slitið. Endanleg útfærsla verður þó í höndum ráða­manna þjóð­ar­innar, stjórn­valda og seðla­bank­ans, og að ein­hverju leyti háð ytri efna­hags­legum aðstæðum. Eitt af því sem horfa þarf til í þessum efnum er fram­tíð­ar­skipan fjár­mála­kerf­is­ins, það er að stefna um eign­ar­hald á end­ur­reistu bönk­unum þremur, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum, þarf að liggja fyrir þegar á end­anum verður ráð­ist í aðgerðir.

Útfærslan þarf að sam­ræm­ast íslenskum rétti og hefur hóp­ur­inn horft til þess að ekki þurfi að koma til sér­stakra laga­breyt­inga vegna þessa, þar sem slíkt gæti styrkt mál­stað kröfu­hafa sem fast­lega er búist við að muni bregð­ast við af hörku ef þessi leið verður farin, þar sem leiðin myndi þýða veru­lega rýrnun á eignum fyrir kröfu­hafa og gera þeim erf­ið­ara um vik að kom­ast með eignir í erlendri mynt frá land­inu.

Í sér­fræð­inga­hópnum, sem hefur lokið störfum, eiga sæti Sig­ur­björn Þor­kels­son, Jón Helgi Egilsson, Ragnar Árnason, Reimar Pét­urs­son, Jón Birgir Jónsson og Eiríkur Svav­ars­son.

Póli­tískur sam­ráðs­hópur um afnám hafta, sem allir stjórn­mála­flokkar eiga sæti í, hefur ekki enn fengið kynn­ingu á vinnu sér­fræð­inga­hóps­ins. Þingmenn sem eiga sæti í hópnum hafa skrifað undir eið þess efnis að þeir láti ekki upp­lýs­ingar til þriðja aðila um mál sem snúa að afnámi hafta.

Lesa má meira um þessi mál og önnur í nýj­ustu útgáfu Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár