Himinn og hafa milli skýrsla HÍ

Í skýrslu Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands um aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og aðild­ar­ferlið til þessa kemur fram að samn­inga­nefnd Íslands hafði þegar náð fram marg­vís­legum und­an­þágum og sér­lausnum í mörgum málum. Í skýrsl­unni segir enn fremur að mögu­legt hafi verið að semja um að íslenska sér­hags­muni í sjáv­ar­út­vegs­málum, meðal ann­ars það að ekki þurfi sér­staka und­an­þágu til þess halda veiðum í íslenskri lög­sögu á hendi íslenskra stjórn­valda. Hins vegar sé hægt, með ein­földum meiri­hluta aðild­ar­ríkja, að breyta þeirri stöðu. Kolbeinn Árnason, sem átti sæti í samn­inga­nefnd Íslands og er nú fram­kvæmda­stjóri LÍÚ, stað­festi þennan skiln­ing í við­tali við RÚV í gær en sagði að það hefði verið mat samn­inga­nefnd­ar­innar að of mikil áhætta hefði verið í því fólgin að hægt væri að breyta stöðu mála með ein­földum meiri­hluta. Því hefði sú staða verið metin óvið­un­andi og of áhættu­mikil.

Í skýrsl­unni kveður við annan tón en í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, þar sem meðal ann­ars segir að veru­lega litlar líkur séu á því að Ísland geti fengið undan­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Í reynd er him­inn og haf á milli túlk­unar skýrslu­höf­unda hjá þessum stofn­unum Háskóla Íslands, sem sýnir vel hve rök­ræðan um þessi álita­efni er lif­andi og dýnamísk, ekki síst innan háskóla­sam­fé­lags­ins. Póli­tískt er staðan aug­ljós­lega snúin og er á það bent í skýrslu Alþjóða­stofn­unar að deilur innan raða stjórnar­flokk­anna hafi grafið undan aðild­ar­ferl­inu og seinkað því, ekki síst mála­efna­vinnu á sviði land­bún­að­ar­mála.

Þetta er örstutt brot úr frétta­skýr­ingu um skýrsl­urnar tvær. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár