RÚV kaupi húsnæði í eigu Mjólkursamsölunnar

Guð­laugur Sverr­is­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í stjórn RÚV, nefndi hús­næði Osta- og smjör­söl­unnar að Bitru­hálsi 2 sem mögu­legt hús­næði undir starf­semi stofn­un­ar­innar, á fundi hjá hús­næð­is­mála­nefnd RÚV á dög­unum. Þetta stað­festir Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, for­maður stjórnar RÚV, en hann á einnig sæti í hús­næð­is­mála­nefnd­inni. Umrædd nefnd hefur hús­næð­is­mál RÚV til skoð­unar, en eins og kunn­ugt er stendur til að selja hús­næði stofn­un­ar­innar við Efsta­leiti.

Húsnæði Osta- og smjör­söl­unnar við Bitru­háls er í eigu Kosts ehf., sem er félag í eigu Auðhumlu svf., sem er jafn­framt eig­andi Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Auðhumla er í eigu um sjö hund­ruð mjólk­ur­fram­leið­anda í land­inu. Húsið er rúm­lega 4.700 fer­metrar að stærð, en því fylgir ríf­lega 33.000 fer­metra lóð. Samkvæmt Þjóðskrá hljóðar fast­eigna­mat húss­ins upp á röskar 705 millj­ónir króna og bruna­bóta­mat upp á 940 millj­ónir.

Þarf um 8000 fer­metra hús­næði

Samkvæmt þarfa­grein­ingu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Deloitte á hús­næð­is­málum RÚV, þarf stofn­unin um 5000 fer­metra undir starf­semi og um 3000 fer­metra geymslu­hús­næði undir búnað og annað sem við­kemur starf­sem­inni. Í hús­næð­is­mála­nefnd RÚV hefur þó enn ekki verið tekin afstaða til þess hversu stórt hús­næði stofn­unin þarf, hún mun taka til­lit til breyttra áherslna í starf­semi RÚV sem enn liggja ekki að fullu fyrir.

Í sam­tali við Kjarnann vildi Guð­laugur Sverr­is­son ekki láta hafa neitt eftir sér, en ítrek­aði að hann hefði lagt til hús­næði Mjólk­ur­sam­söl­unnar sem dæmi um hús­næði sem gæti hentað starf­semi RÚV og væri til. Ljóst er að fer­metra­verðið á Bitru­hálsi er mun lægra en við Efsta­leiti, en þá hefur Korpu­torgið sömu­leiðis verið nefnt sem mögu­legt hús­næði undir RÚV.

Áhugi á núver­andi hús­næði RÚV

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er nokkur áhugi á að kaupa núver­andi hús­næði RÚV við Efsta­leiti, en hús­næðið hefur enn ekki verið aug­lýst til sölu. Á meðal áhuga­samra eru verk­taka­fyr­ir­tæki og rekstr­ar­fé­lög. Þá kemur sömu­leiðis til greina að flytja starf­semi RÚV af efri hæð­unum í Efsta­leiti og aug­lýsa þær til útleigu. Hús­næð­is­mála­nefnd stofn­un­ar­innar veltir öllum mögu­legum kostum fyrir sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár