Hæstiréttur fellir frávísun úr gildi í Aserta-málinu

Hæsti­réttur Íslands felldi í dag úr gildi frá­vísun Hér­aðs­dóms Reykja­ness í Aserta-mál­inu svo­kall­aða. Hér­aðs­dómur vís­aði mál­inu frá dómi 14. mars síð­ast­lið­inn vegna óskýr­leika í ákæru Sérstaks sak­sókn­ara. Í ákærunni er hand­bolta­mann­inum Markúsi Mána Michaelssyni og þremur öðrum gefið að sök að hafa brotið gróf­lega gegn lögum um gjald­eyr­is­mál.

Fjór­menn­ing­arnir eru ákærðir fyrir að hafa stundað við­skipti með krónur á aflands­mark­aði í gegnum sænska félagið Aserta fyrir rúm­lega 14 millj­arða króna á árinu 2009, eftir að gjald­eyr­is­höft­unum var komið á. Með við­skipt­unum er talið að hinir ákærðu hafi hagn­ast um að minnsta kosti 600 millj­ónir króna.

Í tölvu­pósti sem emb­ætti Sérstaks sak­sókn­ara sendi verj­endum fjór­menn­inga, við fyr­ir­töku máls­ins 14. mars síð­ast­lið­inn, kom fram að emb­ættið líti ekki lengur á að gjald­eyr­is­við­skipti þeirra sem brot á gjald­eyr­is­höftum, menn­irnir hafi hins vegar gerst sekir um að stunda við­skipti með gjald­eyri án þess að hafa til þess leyfi.

Dómur Hæsta­réttar í dag þýðir að nú mun málið hljóta efn­is­lega með­ferð fyrir hér­aðs­dómi. Dómur Hæsta­réttar í mál­inu verður birtur á heima­síðu dóm­stóls­ins síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár