Póstur Helga: Sálartetur ritstjóra MÁS-FRÉTTA (áður Mbl) skaddað

Kjarninn hefur undir höndum tölvu­póst sem sýnir glögg­lega að ýmis­legt er skegg­rætt á meðal áhrifa­fólks í við­skipta­líf­inu um slit þrota­búa, afnám gjald­eyr­is­hafta og áætl­anir stjórn­valda í þeim efnum. Póstinn sendi Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og stjórn­ar­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, á ýmsa áhrifa­menn í við­skipta­líf­inu, alls 25 tals­ins, þar á meðal stjórnar­menn í líf­eyr­is­sjóðum og fjár­festa.

Í póst­inum leggur Helgi út frá því hvers vegna Morg­un­blaðið hafi verið svo upp­tekið af því að fjalla um Má Guðmunds­son og launa­mál hans gegn Seðla­bank­anum. Hann segir að und­ir­liggj­andi séu nokkrar ástæður sem séu frekar „subbu­legar“, þar á meðal að Fram­sóknar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn vilji kom­ast að stýr­inu í Seðla­bank­anum til þess að ráða því í hvaða höndum eignir sem Seðla­bank­inn heldur á, þar á meðal kröfur í bú föllnu bank­anna, lendi. Þá segir hann Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­mann stjórnar Seðla­banka Íslands og nú rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, vera að reyna að bæta ímynd sína.

Bréfið var sent 16. mars síð­ast­lið­inn. Orðrétt segir Helgi í bréf­inu:

Sælir félagar.

Sl. laug­ar­dag bar það til tíð­inda að for­síða MÁS-FRÉTTA (áður Mbl.) var ekki lögð undir fréttir af „Stóra-Más-Málinu“ eins og hafði þá gerst í átta blöðum í röð.

Blaðið hefur ekki lagt átta for­síður í röð undir eitt­hvert eitt efni síðan í hrun­inu árið 2008. Þó voru þá eitt­hvað mis­mun­andi áherslur og breið­ari efn­is­tök heldur en í þessu ein­falda klúð­urs­máli sem lög­sókn Más gegn Seðla­bank­anum er. Sumir halda því fram að efna­hags­hrunið á Íslandi árið 2008 sé jafn­vel enn stærra mál en klúðrið kringum launa­mál Más! Ljóst er að for­maður banka­ráðs, Lára V. Júl­í­us­dóttir, hrl., er með allt niður um sig í þessu máli og einnig Már. En hvers vegna er verið að fjalla um þetta til­tölu­lega ómerki­lega mál með því offorsi og þeirri þrá­hyggju sem fram kemur hjá þessum eina fjöl­miðli?

Fyrir því liggja nokkrar ástæður – og flestar eru þær frekar subbu­legar:

Lestu ástæð­urnar sem Helgi taldi upp og afgang tölvu­pósts­ins í Kjarn­anum. Hann er aðgengi­legur hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár