Barist um bestu bitana

Mikil bar­átta hefur átt sér stað á bak við tjöldin und­an­farin miss­eri í við­skipta­líf­inu og stjórn­mál­unum vegna þeirrar stöðu sem fjár­magns­höftin, þrotabú föllnu bank­anna og ákvörðun stjórn­valda um að draga form­lega til baka umsókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur fram­kallað. Að hluta snýr hún að vax­andi þrýst­ingi frá erlendum fjár­festum sem eru í hlut­hafa­hópi margra af helstu útflutn­ings­fyr­ir­tækjum Íslands í iðn­aði, meðal ann­ars Össurs, Marels og CCP. Þeir spyrja ein­fald­lega; af hverju eigum við að vera hér? Hvað græðum við á því?

Til þessa hafa íslensk stjórn­enda­teymi og sér­fræði­þekk­ing í rann­sóknum og þróun verið helsta hindrun þess að fyr­ir­tækin hafi farið form­lega úr landi, með til­heyr­andi skatt­tekju­missi fyrir þjóð­ar­búið og minni ávöxt­un­ar­mögu­leikum á fjár­mála­mark­aði. Fyr­ir­tækin verða ekki fjar­lægð úr landi eins og hendi sé veifað, það er öll starf­semin, en stór skref til við­bótar við þau sem þegar hafa verið stigin verða upp­hafið að enda­lokum þess að flagg­skip íslensks hug­verka­iðn­aðar verði hér með rætur til fram­tíðar litið.

Þetta er örstutt útgáfa af umfjöllun um mögu­legt brott­hvarf Össurar, Marels og CCP frá Íslandi. Lestu hana í heild sinni og óbirta tölvu­pósta áhrifa­manna í íslensku atvinn­lífi um ástandið á Íslandi í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár