Hannar tæki framtíðarinnar

Banda­ríski hug­bún­að­ar­ris­inn Google hefur á und­an­förnum árum fært sig úr sinni hefð­bundnu inter­net­fram­leiðslu og hafið stór­sókn á mark­aði með snjall­tæki. Nýjasta und­rið úr smiðjum Google er Google Glass, eins­konar snjall­gler­augu sem færir tækn­ina í jað­ar­sjón not­enda.

Einn þeirra sem hafði hvað mest áhrif á útkomu Google Glass er yfir­hönn­uður á hönn­un­ar­stofu Google, Robert Wong að nafni. Hann er í ítar­legu við­tali í Kjarn­anum um það hvernig hönnun snertir alla þætti veru­leika okkar. Og ekki síst tækn­ina sem við neytum á hverjum degi.

Verkefni hönn­un­ar­stofu Google sem Wong stýrir eru marg­þætt. Teymið hans hefur meðal ann­ars ann­ast hin svoköll­uðu „Doodles“ sem birt­ast reglu­lega fyrir ofan leit­ar­streng­inn á for­síðu Google. Sjálfur seg­ist hann ekki alveg vita hvað það er sem hann gerir, annað en að reyna að varpa upp mynd af því hvernig tæki nán­ustu fram­tíðar eigi að líta út.

„Ég vildi að það væri ein­hver ein­föld starfs­lýs­ing, en þetta er lítið teymi graf­ískra hönn­uða, texta­höf­unda og kvik­mynda­gerð­ar­manna. Ímyndaðu þér þró­un­ar­stofu, en í stað­inn fyrir vís­inda­menn og verk­fræð­inga eru lista­menn og hönn­uðir. Og vegna þess að við erum lista­menn og hönn­uðir er verk­efnið okkar að fikta í tækjum og tólum, ímynda okkur hvað hægt er að gera með núver­andi tækni eða hvernig hægt er að sam­eina tækin til að búa til ný.“

Þetta er útgáfa af við­tal­inu við Robert Wong í Kjarn­anum. Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár