Fáfræði ógnar heilsu og fjárhag Íslendinga

Að mörgu er að hyggja þegar grunur leikur á að myglu­sveppi sé að finna í fast­eign. Í flestum til­fellum bera ein­stak­lingar fjár­hags­lega ábyrgð á tjón­inu. Erfitt getur verið að sækja bætur þegar um leyndan galla er að ræða. Í Noregi eru myglu­sveppir í húsum við­ur­kennt heil­brigð­is­vanda­mál en á Íslandi lítur kerfið undan. Embætti Land­læknis hefur ekki gefið út leið­bein­ingar varð­andi áhrif myglu­sveppa á heilsu fólks og erfitt getur reynst að fá við­eig­andi lækn­is­að­stoð.

Þegar hús mygla lítur kerfið undan
Fyrsta skrefið þegar hús­ráð­anda grunar að raki og mygla sé í hús­inu er að fá við­ur­kenndan fag­að­ila til að taka út fast­eign­ina. Ef myglu­sveppir finn­ast er oft hægt að laga vanda­málið með litlum til­kostn­aði en í ákveðnum til­fellum getur við­gerð­ar­kostn­aður hlaupið á millj­ónum króna. Ábyrgðin liggur hjá hús­eig­anda nema ef um stað­festan fast­eigna­galla er að ræða.

Verk­taka­fyr­ir­tæki, hönn­uðir og aðrir sem bera ábyrgð á leyndum göllum í fast­eign eru í mörgum til­fellum orðnir gjald­þrota eða hafa skipt um kenni­tölu þegar gall­inn kemur í ljós. Þar af leið­andi getur reynst erfitt að sækja bætur. Bygg­inga­stjórar bera fjár­hags­lega ábyrgð á þeim verkum sem þeir hafa umsjón með þegar ofan­greindir aðilar geta ekki staðið straum af kostn­aði á við­gerð. Í mörgum til­felllum er bæði tíma­frekt og dýrt fyrir hús­eig­endur að leita réttar síns og oft slagar lög­fræði­kostn­aður hús­eig­anda hátt upp í bóta­kröf­una.

Í Noregi er bygg­ing­ar­reglu­gerð mjög ítar­leg og sveitar­félög bera ábyrgð á eft­ir­liti. Fimm árum eftir að hús er byggt gerir við­kom­andi sveit­ar­fé­lag úttekt á hús­inu þar sem meðal ann­ars er farið yfir hvort leyndir gallar séu til staðar.

Þetta er örstutt brot úr áfram­hald­andi umfjöllun Kjarnans um myglu­sveppi. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár