Íslensk tækifæri í stafrænni byltingu

Kostn­að­ur­inn við urðun papp­írs og papp­írs­um­búða sem fer í orku­tunn­una, þrátt fyrir blát­unnu, grennd­ar­gáma og end­ur­vinnslu­stöðvar, er um 50 millj­ónir á ári, að sögn Björns Haf­steins Hall­dórs­sonar, fram­kvæmda­stjóra SORPU. Er þá miðað við að heim­il­is­úr­gangur inni­haldi um 12,8 kíló af pappír og papp­írs­um­búðum, sem eru um 2.800 tonn á ári frá íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Færi þessi pappír og pappi (2.800 tonn) allur í blát­unn­una, grennd­ar­gáma eða end­ur­vinnslu­stöðvar væri mót­töku­gjaldið 0,3 krónur á kíló, eða 840 þús­und á ári,“ segir Björn. Móttöku­gjald SORPU fyrir urðun er í dag 18,02 krónur á kíló með virð­is­auka­skatti. SORPA er byggða­sam­lag í eigu sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu; Reykja­vík­ur­borgar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Sel­tjarn­ar­ness, Mos­fells­bæjar og Garða­bæjar.

Kostn­að­ur­inn lendir því á skatt­greið­endum á höf­uð­borgar­svæð­inu, sem reka SORPU. „Sé dreif­ing á papp­írs- og pappa­umbúðum og pappír (dag­blöð og tíma­rit) svipuð í blönd­uðum heim­il­is­úr­gangi og í blát­unnu­straumnum má gera ráð fyrir að pappír (rit-) sé 80–90% af þessu. Því má ætla að heild­ar­kostn­aður við urðun á dag­blaða- og tíma­rita­pappír á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé um 40–45 millj­ónir á ári,“ segir Björn en tekur fram að upp­hæð­irnar séu gróf­lega áætl­aðar. Ef þessi pappír og pappi, um 2.800 tonn á ári, færi í rétta flokkun í hvert skipti færi kostn­að­ur­inn niður í 840 þús­und á ári.

Lesa má allt um málið í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár